Íslenski boltinn

Stjarnan Bose-meistari eftir stórsigur á KR | 16 ára Stjörnumaður með þrennu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristófer Ingi gat leyft sér að brosa í leikslok.
Kristófer Ingi gat leyft sér að brosa í leikslok. mynd/twitter-síða stjörnunnar
Hinn 16 ára gamli Kristófer Ingi Kristinsson skoraði þrennu þegar Stjarnan rúllaði yfir KR, 7-2, í úrslitaleik Bose-bikarsins í Egilshöll í kvöld.

Stjarnan byrjaði leikinn mun betur og komst í 3-0 með mörkum Arnars Más Björgvinssonar, Þorra Geirs Rúnarssonar og Harðar Árnasonar.

Gary Martin minnkaði muninn í 3-2 fyrir KR en Kári Pétursson kom Stjörnunni svo tveimur mörkum yfir.

Þá var komið að þætti Kristófer Inga sem skoraði þrjú síðustu mörk Stjörnunnar. Lokatölur 7-2, Stjörnunni í vil.

Stjörnumaðurinn Hilmar Árni Halldórsson var valinn besti leikmaður mótsins í leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×