Enski boltinn

Arsenal varð ekki Englandsmeistari en er samt besta liðið á Englandi

Tómas Þór Þóraðrson skrifar
Jess! Við erum bestir!
Jess! Við erum bestir! vísir/getty
Arsenal er besta liðið á Englandi árið 2015 þegar reiknað er út hversu mörg stig liðin í fjórum efstu deildum enska boltans hafa fengið að meðaltali í leik á þessu ári.

Þetta kemur fram í úttekt Sky Sports í dag, en Arsenal var tólf stigum á eftir Chelsea í baráttunni um Englansdmeistaratitilinn á síðustu leiktíð og er tveimur stigum á eftir City í deildinni núna.

Samt sem áður hefur ekkert lið fengið fleiri stig að meðaltali í leik frá 1. janúar til dagsins í dag í fjórum efstu deildum enska boltans.

20 bestu liðin í enska boltanum árið 2015.mynd/sky sports
Arsenal er búið að spila 28 deildarleiki á þessu ári og vinna 19 þeirra, gera fjögur jafntefli og tapa aðeins fimm. Skytturnar hafa fengið 2,18 stig að meðaltali í leik.

Burton Albion, sem vann D-deildina á síðustu leiktíð, er í öðru sæti með 2,08 stig að meðaltali í þeim 37 deildarleikjum sem liðið hefur spilað á árinu.

Manchester City er svo í þriðja sæti með 2,04 stig að meðaltali í leik eftir 18 sigra, þrjú jafntefli og sjö töp og United er í fimmta sæti með 1,89 stig að meðaltali í leik.

Englandsmeistarar Chelsea eru í áttunda sæti listans með 1,86 stig að meðtali í leik, en lærisveinar Mourinho eru búnar að vinna 15 leiki á árinu, gera sjö jafntefli og tapa sex.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×