Enski boltinn

Rodgers ekki lengur atvinnulaus

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rodgers er hann var enn að þjálfa Liverpool.
Rodgers er hann var enn að þjálfa Liverpool. vísir/getty
Brendan Rodgers, fyrrum stjóri Liverpool, var ekki lengi að finna sér nýja vinnu.

Hann er á leiðinni í sjónvarpið og hefur samið við íþróttastöðina beIN sem er í eigu Katara. Hann verður einn af sérfræðingum stöðvarinnar og þarf að vinna með mönnum sem hafa verið duglegir við að gagnrýna hann. Nú er komið að Rodgers að gagnrýna.

Rodgers var því aðeins atvinnulaus í ellefu daga. Hann hefur nýtt þá daga vel í að sleikja sólina á Malaga á Spáni.

Rodgers er þó örugglega í startholunum ef ske kynni að einhver lið í úrvalsdeildinni leiti til hans en hann verður alveg örugglega ekki eini stjórinn sem fær að fjúka á þessari leiktíð.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×