Enski boltinn

Howard Kendall fallinn frá

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kendall náði frábærum árangri með Everton á 9. áratugnum.
Kendall náði frábærum árangri með Everton á 9. áratugnum. vísir/getty
Howard Kendall, fyrrverandi leikmaður og knattspyrnustjóri Everton, er látinn, 69 ára að aldri.

Kendall lék með Everton á árunum 1967-74, alls 270 leiki og skoraði í þeim 30 mörk. Hann varð Englandsmeistari með Bítlaborgarliðinu 1970.

Kendall sneri svo aftur til Everton sem knattspyrnustjóri 1981 og hófst þá mikið blómaskeið í sögu félagsins.

Kendall gerði Everton tvívegis að Englandsmeisturum (1985 og 1987), einu sinni að bikarmeisturum (1984), auk þess liðið vann Evrópukeppni bikarhafa 1985. Hann er síðasti Englendingurinn til að stýra ensku liði til sigurs í Evrópukeppni.

Kendall stýrði Everton aftur á árunum 1990-93 og svo 1997-98 en liðið náði ekki sömu hæðum og það gerði á 9. áratugnum.

Kendall stýrði einnig Blackburn Rovers, Athletic Bilbao, Manchester City, Xanthi, Notts County, Sheffield United og Ethnikos Pireus á 20 ára löngum þjálfaraferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×