Enski boltinn

Vandræðagemsi vill eitt tækifæri til viðbótar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Nile Ranger er kjánabangsi.
Nile Ranger er kjánabangsi. vísir/getty
Nile Ranger, 24 ára gamall sóknarmaður sem spilaði í fjögur ár með Newcastle frá 2009-2013, segist enn hafa mikið fram að færa á fótboltavellinum sé eitthvað félag tilbúið að gefa honum annan séns.

Ranger er vandræðagemsi mikill, en hann var sakfelldur fyrir líkamsárás árið 2013 og var í fyrra sektaður um 1.000 pund fyrir að brjóta rúðu í leigubíl.

Eftir að hann lenti upp á kant við forráðamenn Blackpool þar sem hann spilaði í fyrra hvarf hann í átta mánuði og mætti ekki til æfinga. Hann æfir nú einn í norður-London.

„Mér finnst eins og ég hafi brugðist sjálfum mér. Ég er búinn að fara í fangelsi svona ungur og þó það hljómi furðulega þá lærði ég mikið af því,“ segir Ranger í viðtali við Sky Sports.

„Eldri leikmenn og knattspyrnustjórar voru alltaf að segja mér að halda einbeitingu því fótboltaferilinn er stuttur og reyndu að koma mér í skilning um að þetta varir ekki að eilífu,“ segir hann.

„Nú er ég að átta mig á því að þeir sögðu sannleikann. Ég horfi oft í spegilinn og segi: „Þú ert fáviti. Taktu þetta alvarlega. Þetta er lífið þitt.“

„Á meðan ég hef dvalið í London hafa tveir vinir mínir látið lífið og það opnaði augu mín. Ég hef fengið fleiri tækifæri en kötturinn en nú er ég tilbúinn til að taka mig á,“ segir Nile Ranger.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×