Enski boltinn

Mörkin hans Falcao á Englandi hafa kostað 513 milljónir stykkið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Radamel Falcao fær mikið greitt fyrir markið.
Radamel Falcao fær mikið greitt fyrir markið. vísir/getty
Þó Radamel Falcao, framherji Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, sé skugginn af sjálfum sér þarf hann ekki að hafa áhyggjur af því að eiga ekki fyrir salti í grautinn.

Falcao þénar vel á Englandi, en hann spilaði á síðustu leiktíð með Manchester United og skoraði aðeins fjögur deildarmörk. Hann hefur nú aðeins skorað eitt mark í deildinni fyrir Chelsea.

Þessi magnaði Kólumbíumaður, sem var ein mesta markavélin í boltanum áður en hann sleit krossband í byrjun árs 2014, fékk 285.000 pund í vikulaun hjá Manchester United og er með 140.000 hjá Chelsea þrátt fyrir að hafa ekkert getað á Old Trafford í fyrra.

vísir/getty
Hann er í heildina búinn að spila 54 vikur á Englandi og fengið fyrir það greitt samtals 13,2 milljónir punda eða 2,5 milljarða íslenskra króna.

Falcao er samtals búinn að skora fimm mörk fyrir United og Chelsea og hefur hvert mark því „kostað“ hvorki meira né minna en 2,64 milljónir punda eða 513 milljónir króna.

Mörkin gerast ekki mikið dýrari en það.

Manchester United - 1. september til 30. júní (39 vikur)

Vikulaun: 285.000 pund (55,3 milljónir króna)

Heildarlaun: 11,1 milljón punda (2,2 milljarðar króna)

Mörk: Fjögur

Chelsea - 3. júlí til dagsins í dag (15 vikur)

Vikulaun: 140.000 pund (27 milljónir króna)

Heildarlaun: 2,1 milljón punda (408 milljónir króna)

Mörk: Eitt

Heildarlaun á Englandi: 13,2 milljónir punda (2,5 milljarðar króna)

Kostnaður fyrir hvert mark: 2,64 milljónir punda (513 milljónir króna)

Grein Daily Mail um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×