Sanchez stórkostlegur í öruggum sigri Arsenal | Sjáðu mörkin 4. október 2015 16:45
Alexis Sanchez, leikmaður Arsenal, fór á kostum og setti tvö mörk í 3-0 sigri Arsenal á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Arsenal kemst upp fyrir Manchester United í stigatöflunni á markatölu með sigrinum en liðin eru tveimur stigum á eftir Manchester City eftir átta umferðir. Skytturnar fengu sannkallaða draumabyrjun á 6. mínútu þegar Alexis Sanchez skoraði fyrsta mark leiksins með glæsilegri hælspyrnu framhjá David De Gea en markið virtist einfaldlega rota leikmenn Manchester United. Aðeins mínútu síðar var boltinn kominn aftur í netið og var Mesut Özil þar að verki eftir skemmtilegan samleik við Theo Walcott. Alexis Sanchez setti annað mark sitt og þriðja mark Arsenal tíu mínútum síðar er hann lék á tvo varnarmenn gestanna og skoraði með þrumufleyg í fjærhornið sem De Gea átti ekki möguleika að verja. Arsenal fékk tækifæri til þess að bæta við mörkum í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik voru gestirnir betri aðilinn og fengu færi til að minnka muninn en tókst ekki að koma boltanum framhjá Petr cech í marki Arsenal. Lauk leiknum með 3-0 sigri Arsenal en lærisveinar Arsene Wenger voru afar sannfærandi í dag og var sigurinn fyllilega verðskuldaður. Var allt annað að sjá til liðsins heldur en í 2-3 tapinu gegn Olympiakos á dögunum.Özil bætir við öðru marki Arsenal: Sanchez er í stuði:
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Sjá meira