Erlent

Nýfætt barn á meðal særðra í skotárás í kirkju í Alabama

Atli Ísleifsson skrifar
Árásin átti sér stað í miðri messu.
Árásin átti sér stað í miðri messu. Vísir/Getty
Þrír særðust í skotárás manns í kirkju í East Selma í Alabama fyrr í dag.

Michael Jackson, saksóknari í Dallas-sýslu, greinir frá því að maður að nafni James Minter hafi verið handtekinn vegna árásarinnar sem varð í Oasis-kirkjunni í bænum.

Jackson segir að hinn 26 ára Minter hafi skotið kærustu sína, nýfætt barn hennar og prestinn í kirkjunni.

Í frétt Selma Times Journal kemur fram árásin hafi átt sér stað í miðri messu þar sem Minter hafi verið á fremsta bekk ásamt fjölskyldu sinni þegar hann byrjaði að skjóta úr byssu sinni.

Segir að kærasta Minter hafi verið skotin í andlit og öxl, barnið í handlegginn og presturinn í fótlegginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×