Segir það ekki hafa verið rétt að veita Obama friðarverðlaun Nóbels Atli Ísleifsson skrifar 16. september 2015 13:24 Geir Lundestad og Thorbjørn Jagland árið 2011. Vísir/AFP
Geir Lundestad, fyrrverandi forstöðumaður norsku Nóbelsstofnunarinnar, segir ekki hafa verið rétt að veita Barack Obama Bandaríkjaforseta friðarverðlaun Nóbels. Þetta kemur fram í bók Lundestad, „Fredens sekretær - 25 år med Nobelprisen“ sem var gefin út í morgun.Í frétt Verdens Gang kemur fram að Lundestad segi það jafnframt hafa verið mistök að skipa Thorbjørn Jagland sem formann norsku Nóbelsnefndarinnar. Hann segir þá Jagland hafa komið vel saman, en að ekki sé við hæfi að fyrrum forsætis- og utanríkisráðherra taki sæti í nefndinni. Jagland hafi einnig gegnt embætti forseta Evrópuráðsins og að stöðurnar færu illa saman. Lundestad var forstöðumaður norsku Nóbelsstofnunarinnar í 25 ár, frá 1990 en hann lét af störfum fyrr á árinu. Í bókinni lýsir hann ýmsu því sem gerðist að tjaldabaki hjá Nóbelsnefndinni.Vonlaust að standa undir væntingum Nóbelsnefndin veitti Obama verðlaunin árið 2009 en Lundestad segist sjálfur hafa lýst yfir efasemdir við ákvörðunina. Vonlaust væri fyrir Obama að standa undir þeim væntingum sem gerðar voru til hans með því að afhenda honum verðlaunin, innan við ári eftir að hann tók við völdum. Lundestad segir jafnframt að skiptar skoðanir hafi verið meðal nefndarmanna en að lokum hafi þeir sameinast um Obama. Lundestad greinir einnig frá því í bókinni að Jonas Gahr Støre, þáverandi utanríkisráðherra Noregs og núverandi formaður Verkamannaflokksins, hafi tvívegis varað Nóbelsnefndina við að veita kínverska baráttumanninum Liu Xiaobo verðlaunin, en afhendingin mætti mikilli andstöðu frá kínverskum stjórnvöldum.
Mest lesið Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið Innlent Klara Baldursdóttir er látin Innlent Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Innlent Erlendur ferðamaður féll í Brúará Innlent „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Innlent Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Innlent Konan sem féll í Brúará er látin Innlent Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Innlent Stafræn skírteini hætta í símaveskjum Innlent Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Erlent Fleiri fréttir Tók 12 ár að breyta reglum um bætur vegna seinkun flugferða Grófu látin og særð börn upp úr rústum Wagner yfirgefur Malí í skugga mikilla árása Mótmæli og átök eftir áhlaup ICE í Los Angeles Aftur logar eldur í Læradal Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Stærsta árásin á Kharkív hingað til Var fluttur óvart úr landi en er snúinn aftur Engin sátt í sjónmáli: Trump vill selja Tesluna Klóra sér í kollinum yfir stórri reikistjörnu á braut um litla stjörnu Reyna að stilla til friðar með símtali Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Bras á breska Umbótaflokknum þrátt fyrir velgengnina Brotlentu öðru einkafari á tunglinu Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Eldar loguðu í Kænugarði eftir umfangsmiklar árásir Rússa Segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband Ákærð fyrir að myrða táning en líkið enn ófundið Sagður verulega ósáttur við gagnrýni Musks Fíll ruddist inn í matvöruverslun Bannar nú erlenda nemendur í Harvard á grunni þjóðaröryggis Felldu tillögu um að olíusjóðurinn sniðgengi fyrirtæki á hernumdu svæðunum Krefst fimm prósenta til varnarmála: „Allir þurfa að leggja hönd á plóg“ Endurvekur ferðabannið Telja rúmensk glæpagengi smygla matarsendlum inn í Ósló Birtir þrisvar sinnum fleiri færslur en áður Svíar leigja fangelsispláss í Eistlandi Reyndi að bragðbæta baneitruðu máltíðina Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Sjá meira