Neville: Wenger er annað hvort barnalegur eða hrokafullur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. ágúst 2015 08:55 Wenger hefur ekki stýrt Arsenal til meistaratitils síðan 2004. vísir/getty
Gary Neville, fyrrverandi fyrirliði Manchester United og núverandi sparkspekingur á Sky Sports, fór mikinn í þættinum Monday Night Football í gær. Umfjöllunarefnið var leikur Arsenal og Liverpool sem endaði með markalausu jafntefli. Neville rýndi í leikinn ásamt Jamie Carragher og Thierry Henry en meðal þess sem þeir ræddu var miðjuspil Arsenal. Neville gagnrýndi Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal, og tregðu hans að kaupa ekki sterkan miðjumann í anda Patrick Viera og Emmanuel Petit nokkuð harkalega. „Þetta er annað hvort hroki eða barnaskapur, því þetta virkar ekki. Hann er á villigötum,“ sagði Neville og máli sínu til stuðnings benti hann á að Arsenal þyrfti líkamlega sterkan og kraftmikinn miðjumann sem mótvægi við alla flinku leikmennina hjá liðinu. „Ég skil ekki af hverju hann hefur ekki keypt kröftuga leikmenn til að styðja við þessa hæfileikaríku leikmenn.“ Neville setti líka spurningarmerki við þá tilhneigingu Wenger að nota vængmenn á miðjunni. „Það er svartur blettur á ferli Wenger síðustu 10 árin að hafa ekki keypt svona leikmann því það er ekki hægt að vinna deildina með þá miðjumenn sem hann hefur notast við undanfarin ár,“ sagði Neville. „Þetta eru góðir leikmenn, (Santí) Cazorla er frábær leikmaður. En þú vinnur ekki deildina með svona leikmenn á miðjunni.“Gagnrýni Nevilles má sjá í myndbandinu hér að ofan.
Enski boltinn Mest lesið Pirraður Heimir: „Er þetta spurning?“ Fótbolti Haaland skoraði fimm í tíu marka sigri Noregs Fótbolti Uppgjörið: Frakkland - Ísland 2-1 | Grátlegt tap í París eftir hetjulega baráttu Fótbolti Arnar eftir tapið súra í París: „Hef þroskast svo mikið” Fótbolti Breiðablik hafnaði tilboði í Ágúst Orra Íslenski boltinn Einkunnir Íslands: Andri Lucas bestur í grátlegu tapi í París Fótbolti Sársvekktur Andri Lucas: „Ég eiginlega veit ekki hvað hann dæmir á“ Fótbolti Myndasyrpa: Borg ástarinnar stóð ekki undir nafni Fótbolti „Þetta mark átti klárlega að fá að standa“ Fótbolti „Frammistaða sem við getum svo sannarlega byggt ofan á“ Fótbolti Fleiri fréttir Ange tekinn við Forest: „Hefur sýnt og sannað að hann geti unnið titla“ Liverpool hyggst fá Guéhi frítt Postecoglou að taka við Forest Nuno rekinn frá Forest Segir að treyja Man United sé þung byrði Man City og úrvalsdeildin náð sáttum varðandi auglýsingasamninga „Tottenham Hotspur er ekki til sölu“ Rúrik segir að Füllkrug vilji ekki láta laga tennurnar í sér Gyökeres vitni í réttarhöldum Segir að Liverpool-menn muni sennilega aldrei jafna sig á fráfalli Jota Orðin dýrust í sögu kvennaboltans Fantasýn: „Ekki kaupa Isak núna“ Levy var neyddur til að hætta Maðurinn sem keyrði á Liverpool stuðningsfólkið neitar sök Ein sú besta gæti snúið aftur eftir 20 mánaða fjarveru Gæti orðið fyrsti músliminn til að spila fyrir enska landsliðið Levy hættur hjá Tottenham eftir 25 ár í starfi Mo Salah var ekki skemmt vegna færslu um fyrrum félaga Setti nýtt heimsmet í Liverpool treyjum Chiesa og Tel ekki valdir í Meistaradeild en Dowman gæti slegið met Liverpool eyddi meira en öll sádi-arabíska deildin til samans Rauðu djöflarnir horfa til framtíðar með nýjum markverði Sunnudagsmessan: Fylltu í eyðurnar Guardiola fer ótroðnar slóðir með Donnarumma milli stanganna Grimsby notaði ólöglegan leikmann gegn United en slapp með sekt Biturðin lak af tilkynningu um Isak Man. City seldi markvörð og lánaði varnarmann Pressan gríðarleg eftir eyðslu sumarsins „Sjáum af hverju hann er að reyna koma honum í liðið“ Isak dýrastur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Sjá meira