„Eitthvað lyktar illa hjá Liverpool“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. júlí 2015 09:00 Það verður pressa á Brendan Rodgers, segir Shearer. vísir/getty
Alan Shearer, markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi, telur að sömu fjögur liðin berjist um efstu fjögur sætin í ensku úrvalsdeildinni og á síðustu leiktíð. Shearer, sem starfar í dag sem sparkspekingur BBC, segir í úttekt vefsíðu BBC, að Manchester-liðin, Chelsea og Arsenal verði í baráttunni en ekkert endilega í sömu röð og á síðustu leiktíð. Bestu liðin hafa verið að bæta við sig mönnum og sá dýrasti er enska ungstirnið Raheem Sterling sem fór til Manchester City frá Liverpool fyrir 49 milljónir punda. „Raheem er ekki 49 milljóna punda virði. Hann er góður leikmaður sem getur orðið betri og er eldfljótur. Hann þarf samt að bæta sig á mörgum sviðum. Mun hann bæta sig hjá City? Já. En er hann peninganna virði? Nei,“ segir Shearer, en hvað um Arsenal og United?Petr Cech verður góður fyrir Arsenal, segir Shearer.vísir/gettyÞað verður pressa á Rodgers „Cech verður frábær fyrir Arsenal og vinnur mikið af stigum fyrir liðið. Arsenal vantar samt heimsklassa framherja til að taka annað skref í átt að titlinum.“ „Það er enn verk að vinna hjá Manchester United. Það er ekki mikill munur á milli Manchester-liðanna og þau keppast við Chelsea allt mótið. Mér finnst United samt vanta 1-2 leikmenn í viðbót,“ segir Shearer. Liverpool hafnaði í sjötta sæti á síðustu leiktíð og aftur hefur Brendan Rodgers fengið að versla. Hann er búinn að kaupa Roberto Firmino og Christian Benteke auk þess sem hann fékk James Milner á frjálsri sölu. Þá gerði Rodgers breytingar á þjálfaraliðinu, en aðstoðarstjórinn Colin Pascoe og aðalliðsþjálfarinn Mike Marsh eru farnir frá Liverpool. „Brendan er aftur að eyða fullt af peningum. Hann verður að vinna eitthvað í ár,“ segir Shearer. „Svo er það hvernig þessar breytingar urðu á þjálfaraliðinu. Mér finnst skrítið að þú rekir þína hægri hönd til margra ára bara vegna þess að liðið stóð sig ekki nógu vel og segir félagið vilja gera tæknilega breytingu.“ „Þetta lítur skringlega út fyrir mér. Eitthvað lyktar illa hjá Liverpool. Brendan verður undir mikilli pressu,“ segir Alan Shearer.
Enski boltinn Mest lesið Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn Sjáðu Stjörnuna klára Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Sjá meira