Enski boltinn

United ekki búið að semja við Fenerbahce um Van Persie

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Þrátt fyrir að Fenerbahce hafi staðfest félagaskipti Hollendingsins Robin van Persie frá Manchester United og kynnt hann formlega til sögunnar nýjan leikmann félagsins hefur Manchester United ekki sagt neitt um málið.

Samkvæmt frétt The Guardian hafa félögin tvö ekki enn náð samkomulagi um kaupverð á Van Persie en fullyrt hefur verið að það nemai 4,7 milljónum punda, jafnvirði 982 milljónum króna. United greiddi rúmlega fjórum sinnum meira fyrir Van Persie fyrir þremur árum síðan.

Van Persie flaug til Tyrklands á sunnudag og gekkst undir læknisskoðun á mánudag. Hann var svo kynntur stuðningsmönnum í gær með formlegri viðhöfn á heimavelli félagsins.

United er sagt vera á höttunum eftir sóknarmanni til að fylla í skarð Van Persie og hefur Edinson Cavani verið orðaður við félagið.

Forráðamenn United eiga þó ekki von á hárri greiðslu fyrir Van Persie sem verður 32 ára eftir fáeinar vikur. Hann skoraði tíu mörk fyrir United á síðustu leiktíð.


Tengdar fréttir

Van Persie er ekkert súr

Robin van Persie segir engin leiðindi fylgja því að hann sé ekki lengur leikmaður ensku úrvalsdeildarliðsins Manchester United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×