Kane fullkominn fyrir Manchester United 14. júní 2015 15:45 Harry Kane skoraði 21 mark á síðustu leiktíð og Phil Neville segir hann fullkominn fyrir Man. United. vísir/afp
Phil Neville, fyrrum leikmaður Manchester United, segir að Harry Kane, framherji Tottenham, myndi smellpassa inn í lið United en Kane er orðaður við Manchesterliðið. Talið er að Manchester United hafi mikinn áhuga á að kaupa Kane en Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, hefur engan áhuga á að selja framherja sinn, sem skoraði 21 mark á síðustu leiktíð. "Hann var frábær á síðustu leiktíð og ég er mikill aðdáandi Harry Kane. Hann er vinnusamur og með frábært hugarfar og fátt virðist slá hann út af laginu, hann svarar öllum áskorunum sem hann fær," segir Neville. "Liðið [Manchester United] hefur alltaf haft sterkan grunn af breskum leikmönnum og ég held að það sé enn mikilvægt, að þú fáir breska leikmenn og að hryggjasúla liðsins sé með bresku ívafi. Það hefur verið lykill að árangri undanfarin ár og ég vona að það haldi áfram," bæti Neville við. Neville segir að Manchester United þurfi að bæta við sig sóknarmanni fyrir komandi leiktíð en Kane hefur verið orðaður við Manchester United fyrir 40 milljónir punda, tæpa 8,3 milljarða króna. "Kane myndi kosta mikið, það er á hreinu og ég held að Tottenham vilji ekki missa hann. En ég tel að við að missa Falcao og spila í Meistaradeild Evrópu, þá þurfi United sennilega einn sóknarmann til viðbótar. Og sá leikmaður sem Manchester United mun kaupa í sumar verður að vera gæða leikmaður úr evrópskum bolta, hvort sem hann er frá Englandi eða ekki. Kane uppfyllir það og ef þeir fá Harry Kane, þá verða það frábær kaup," segir Neville að lokum.
Enski boltinn Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Handbolti Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Sport Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Fótbolti Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Fótbolti Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið Golf Fleiri fréttir Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Sjá meira