Þriggja marka fyrri hálfleikur dugði Arsenal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2015 17:45 Alexis Sánchez skoraði tvö mörk í kvöld. Vísir/Getty
Arsenal komst upp að hlið Manchester City í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 útisigur á Hull í kvöld en þetta var níundi sigur lærisveina Arsene Wenger í síðustu tíu deildarleikjum. Arsenal-liðið skoraði öll þrjú mörkin sín í fyrri hálfleik en Síle-maðurinn Alexis Sánchez skoraði tvö þeirra. Sánchez hefur þar með skora 24 mörk í öllum keppnum á sínu fyrsta tímabili með Arsenal. Aaron Ramsey var næstum því sparkaður út úr leiknum á 25. mínútu eftir takka-tæklingu frá Tom Huddlestone en velski miðjumaðurinn harkaði af sér og átti heldur betur eftir að svara fyrir sig á jákvæðan hátt. Það var hinsvegar Alexis Sánchez sem kom Arsenal yfir í leiknum þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu á 29. mínútu eftir að hafa fiskað hana sjálfur. Boltinn hafði viðkomu í varnarveggnum og truflaði Steve Harper í markinu. Aaron Ramsey skoraði annað markið á 33. mínútu eftir að hafa fengið langa sendingu fram frá Santi Cazorla og lagði síðan upp þriðja markið fyrir Alexis Sánchez í uppbótartíma fyrri hálfleiksins. Hull gafst ekki upp og Stephen Quinn minnkaði muninn á 56. mínútu með skalla eftir sendingu frá Ahmed Elmohamady. Arsenal-menn vildu þá fá aukaspyrnu fyrir brot á Laurent Koscielny í aðdragandanum og höfðu nokkuð til síns máls. Fleiri urðu mörkin þó ekki og Arsenal fagnaði öruggum sigri.
Enski boltinn Mest lesið Boxari lést tveimur vikum eftir að hafa gift sig Sport Frakkar sjokkeraðir vegna hópsins sem kemur til Íslands Fótbolti Hundruð milljóna í bónus en gæti þurft að finna sér nýja vinnu Fótbolti Finnur fyrir miklum létti: „Algjört andlegt rugl“ Körfubolti Þeir bestu (6. sæti): Mókollur, Uxi og sumarið 1995 Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Fram 27-28 | Fram Íslandsmeistari í fyrsta sinn í tólf ár Handbolti Höfnuðu í þriðja sæti en urðu samt meistarar Enski boltinn Starf Amorims öruggt Enski boltinn Keppandi á Steraleikunum bætti 16 ára gamalt heimsmet Sport Þjálfari Íslendingaliðsins í veikindaleyfi eftir yfirliðið Handbolti Fleiri fréttir Var ekki nógu ánægður með Trent Toney í enska hópnum en enginn úr Man. Utd Starf Amorims öruggt Höfnuðu í þriðja sæti en urðu samt meistarar Fernandes tilbúinn að fara ef United vill græða á honum Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Kona Calvert-Lewin varð fyrir barðinu á netníðingum Guardiola hótar að hætta „Manchester er heima“ Rómverjar vilja Nuno sem gæti verið ósáttur í Skírisskógi De Bruyne kvaddur með stæl Frimpong í læknisskoðun hjá Liverpool og Kerkez í launaviðræðum Beckham varar Manchester United við Hinselwood hetja Brighton gegn meisturunum Cunha að ganga í raðir Man United Hættir á BBC strax á sunnudaginn: „Ég geri mér grein fyrir uppnáminu sem ég olli“ Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti Draumaendir hjá Vardy í kveðjuleiknum Chelsea vann á Wembley og fullkomnaði þrennuna Stórkostleg stemning og sætur sigur í síðasta leiknum í Guttagarði Átti Henderson að fá rautt spjald? „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Dóttir Liams Gallagher á von á barni með guðsyni Guðna Bergs Þrír frá Liverpool og tveir frá Forest tilnefndir sem leikmaður ársins Sjá meira