Erlent

Lest setur heimsmet í hraða

Anna Guðjónsdóttir skrifar
Lestin notast við nýja tækni til að ná þessum mikla hraða.
Lestin notast við nýja tækni til að ná þessum mikla hraða. Vísir/Epa
Lest í Japan hefur slegið sitt eigið heimsmet í hraða þegar hún náði 603 kílómetra hraða. Sama lest hafði sett hraðamet vikunni áður þegar hún náði 590 kílómetra hraða. Lestin, sem er enn á tilraunastigi, notast við tækni sem kallast segullyfting sem eru rafknúnir seglar sem lyfta upp og hreyfa vagnana eftir teinunum.

Þrátt fyrir að lestin hafi sett met munu farþegar þó ekki fá að upplifa svo mikinn hraða. Lestin mun ferðast á 505 kílómetra hraða. Hraðskreiðustu lestar nú í Japan ná 320 kílómetra hraða. Kostnaður við lestina er gríðarlegur og byggja þarf sérstök göng fyrir hana.

Fyrirtækið JR Central hefur hannað lestarnar og vonast til að geta farið að nota þær á milli Tókýó og Nagoya árið 2027. Ferðalagið er 280 kílómetrar og tæki um 40 mínútur með nýju lestinni, sem er tæplega helmingi styttri tími en það tekur nú.

Einnig er vonast til að lestin muni geta ferðast milli Tókýó og Osaka árið 2045 en það ferðalag tæki aðeins klukkustund með nýju tækninni, en tekur um helmingi lengri tíma nú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×