Hull slökkti endanlega á Meistaradeildardraumi Liverpool | Sjáið sigurmarkið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. apríl 2015 15:16 Michael Dawson fagnar marki sínu Vísir/Getty
Hull vann gríðarlega mikilvægan sigur á Liverpool í kvöld í ensku úrvalsdeildinni en lærisveinar Steve Bruce eru að berjast fyrir sæti sínu í deildinni. Michael Dawson skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleiknum og baráttuglöðu liði Hull tókst að halda hreinu á móti bitlausu Liverpool-liði. Liverpool hefur þar með aðeins náð í fjögur stig af fimmtán mögulegum í síðustu fimm deildarleikjum sínum og er nú sjö stigum frá Meistaradeildarsæti þegar fjórar umferðir eru eftir. Liverpool tókst ekki að skora í kvöld ekki frekar en í markalausa jafnteflinu á móti West Bromwich Albion um síðustu helgi. Hull vann hinsvegar sinn annan leik í röð og liðið hefur haldið hreinu í þeim báðum. Þessi sex stig skila liðinu upp í 15. sæti, fjórum stigum frá fallsæti. Fyrri hálfleikurinn var jafn en Hull-liðið fékk betri færi og átti skilið að vera yfir í hálfleik. Simon Mignolet bjargaði frá Dame N'Doye eftir sjö mínútna leik og svo aftur þegar Hull-liðið fékk tvö dauðafæri með sekúndna millibili eftir tæplega hálftíma leik. Markið kom ekki fyrr en á 37. mínútu leiksins þegar Michael Dawson skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Ahmed Elmohamady. Liverpool var nálægt því að jafna metin á síðustu mínútum fyrri hálfleiks, fyrst varði Steve Harper frá fyrirliðanum Jordan Henderson og svo slapp Glen Johnson í gegn við endalínuna en boltin rúllaði fyrir framan markið án þess að félögum hans tókst að komast í hann. Liverpool var miklu meira með boltann í seinni hálfleiknum en gekk illa að opna vörnina hjá Hull. Jordan Henderson fékk besta færið en Steve Harper varði þá vel frá honum. Lið Hull var skipulagt og seinni hálfleikurinn snérist að mestu um að loka svæðum og halda marki sínu hreinu sem liðinu tókst.1-0 fyrir Hull - Michael Dawson
Enski boltinn Mest lesið Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn Fleiri fréttir Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Sjá meira