Erlent

Mótmælandi stökk upp á borð Draghi

Atli ÍSleifsson skrifar
Þegar konan var komin upp á borðið kallaði hún nokkrum sinnum "Bindið enda á einræði Evrópska seðlabankans!“.
Þegar konan var komin upp á borðið kallaði hún nokkrum sinnum "Bindið enda á einræði Evrópska seðlabankans!“. Vísir/AFP
Ung kona stökk upp á borð Mario Draghi, seðlabankastjóra Evrópu, á fréttamannafundi í Frankfurt í morgun. Reif hún pappíra Draghi af honum og kastaði í loftið.

Þegar konan var komin upp á borðið kallaði hún nokkrum sinnum „Bindið enda á einræði Evrópska seðlabankans!“.

Fréttamannafundinum var fram haldið eftir að öryggisverðir höfðu fært konuna út úr salnum.

Uppfært 14:55: Baráttusamtökin Femen hafa greint frá því á Twitter síðu sinni að hafa skipulagt atburðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×