Eiður Smári: Eitthvað við það að vera fyrirliði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2015 18:00 Eiður Smári Guðjohnsen. Vísir/Getty
Eiður Smári Guðjohnsen er kominn aftur til Bolton þar sem hann spilaði í upphafi ferilsins síns og íslenski framherjinn reynslumikli hefur farið vel af stað á gamla staðnum. Eiður Smári fékk fyrirliðabandið fyrir síðasta leik og þakkaði fyrir það með því að jafna metin í 1-1 í 3-1 sigri á Fulham í ensku b-deildinni. „Það er eitthvað sem er við það að vera fyrirliði og ég fann það þrátt fyrir að vera kominn á minn fótboltaaldur," segir Eiður Smári Guðjohnseon í viðtali við The Bolton News. „Þetta er svolítið skrítið og erfitt að útskýra. Ég er bara ánægður með að við unnum leikinn. Ég hélt að ég hefði gert allt í fótboltanum en svo kemur upp aðstaða eins og þessi. Fótboltinn getur alltaf komið þér á óvart," sagði Eiður Smári. „Ég var fyrirliði hjá íslenska landsliðinu og nokkrum sinnum hjá Chelsea líka. Kannski fékk ég bandið líka hjá Barcelona, ég bara man það ekki," sagði Eiður Smári sem var þarna fyrirliði Bolton-liðsins í fyrsta sinn. „Mér leið eins og ég væri að koma heim þegar ég samdi aftur við Bolton. Ég var því ekki lengi að segja já þegar stjórinn spurði mig hvort ég tæki fyrirliðabandið," sagði Eiður Smári. „Það ætti ekki að skipta máli hver sé fyrirliðinn en ég neita því ekki að því fylgir sérstök tilfinning," sagði Eiður Smári. Hann hefur skorað þrjú mörk á tímabilinu en markið á móti Fulham var það fyrsta sem kom ekki af vítapunktinum. „Ég sagði strax að það myndi taka mig nokkra leiki að komast í leikform sem og að þetta gæti verið upp og niður hjá mér. Ég vissi að ég þurfti tíma til að ná mér í fullt form og svo tekur það mig aðeins lengur en aðra í liðinu að ná mér eftir leiki," sagði Eiður Smári. „Ég er mjög stoltur af því að hafa fengið fyrirliðabandið og ekki síst að fá að leiða lið sem sýndi þennan karakter í leiknum við Fulham," sagði Eiður Smári en það má finna allt viðtalið við hann hér.
Enski boltinn Mest lesið Musk og Schwarzenegger sendu Hafþóri Júlíusi hamingjuóskir Sport Rashford mátaði treyjuna í leik sem átti ekki að fara fram Fótbolti „Þeir refsuðu okkur í dag“ Fótbolti „Þurftum að fá aðeins ferskt blóð inn í þetta“ Fótbolti „Það er að kosta okkur mikið að nýta ekki færin“ Fótbolti Skrifaði undir nýjan samning eftir að hafa verið svo gott sem farinn Fótbolti Evrópumót kvenna aldrei betur sótt en nú Fótbolti „Ég klikka ekki á tveimur vítaspyrnum í röð“ Fótbolti Dagskráin í dag: Mikilvægur leikur í Garðabæ Sport Rúnar Kristinsson: Glaðir með stigið Fótbolti Fleiri fréttir Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Dan Burn hjá Newcastle: Verðum svekktir ef Alexander Isak fer Gyökeres í flugvél á leið til London Sádarnir spenntir fyrir Antony Newcastle íhugar að kaupa Sesko Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Textor á ekkert í Crystal Palace lengur Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski kvennaboltinn leyfir áfengi á áhorfendapöllunum Eigendur Man. City græða pening á kaupum Man. United Bað sjálfur um frí og vill fara frá Newcastle Úlfarnir kaupa kólumbíska Pelé Isak fer ekki í æfingaferðina Son eftirsóttur í LA og Tottenham tilbúið að selja en ekki strax Zubimendi fór ekki til Liverpool af því að hann vildi gæðaþjálfara Eiginkona Diogo Jota með vasaklútaskilaboð Liverpool staðfestir Ekitike og fljúga honum strax til Hong Kong Fyrsti bikar í húsi hjá Arsenal Hefur trú á að Rashford láti ljós sitt skína í Katalóníu Palace áfrýjar og vill spila í Evrópudeildinni Sögunni endalausu um Gyökeres loksins að ljúka Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Sjá meira