Arsenal valtaði yfir bitlaust lið Aston Villa | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. febrúar 2015 00:01 Leikmenn Arsenal fagna marki Olivers Giroud. Vísir/Getty
Arsenal rúllaði yfir Aston Villa í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Oliver Giroud, Mesut Özil, Theo Walcott, Santi Cazorla og Hector Bellerín skoruðu eitt mark hver í 5-0 sigri. Giroud opnaði markareikninginn á 8. mínútu þegar hann skoraði sitt sjöunda deildarmark í vetur eftir frábæra stungusendingu frá Özil. Giroud endurgalt Özil greiðann á 56. mínútu þegar hann sendi Þjóðverjann í gegnum fáliðaða vörn Aston Villa. Özil urðu ekki á nein mistök og skoraði framhjá Brad Guzan í marki gestanna. Sjö mínútum síðar skoraði Theo Walcott þriðja markið eftir sendingu frá Cazorla sem skoraði svo fjórða markið úr vítaspyrnu á 75. mínútu. Hinn 19 ára gamli Chuba Akpom fiskaði vítið en hann kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik. Bellerín fullkomnaði svo sigurinn þegar hann skoraði fimmta markið í uppbótartíma. Þetta var þriðji sigur Arsenal í röð en liðið er með 42 stig í 5. sæti, jafnmörg stig og Southampton sem situr í 4. sætinu. Dýrlingarnir eiga hins vegar leik inni gegn Swansea seinna í dag. Aston Villa er hins vegar á hinum enda töflunnar en liðinu hefur gengið skelfilega á undanförnum vikum eftir ágætis byrjun á tímabilinu. Villa hefur ekki skorað í sex leikjum í röð en síðast skoraði liðið gegn Manchester United 20. desember.Arsenal 1-0 Aston Villa Arsenal 2-0 Aston Villa Arsenal 3-0 Aston Villa Arsenal 4-0 Aston Villa Arsenal 5-0 Aston Villa
Enski boltinn Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Með Haaland á toppi vinsældalistans Fótbolti Ken Bates látinn Enski boltinn Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira