Nauðgarar falsa söguna með samfélagsmiðlum Samúel Karl Ólason skrifar 29. janúar 2015 10:12 Þeim tilvikum fer fjölganid í Bretlandi þegar nauðgarar reyna að hafa áhrif á gang rannsókna, eða koma í veg fyrir þær, með samfélagsmiðlum. Vísir/Getty
Nauðgarar eru í auknu mæli farnir að nota samfélagsmiðla, eins og Facebook og Twitter, til að draga úr trúverðugleika fórnarlamba sinna og að afvegaleiða rannsóknir. Þetta kom fram á ráðstefnu lögregluþjóna og saksóknara í Bretlandi á miðvikudaginn. Ein aðferðin sem lýst var á ráðstefnunni var að nauðgarar hafi samband við fórnarlömb sín og breyti sögunni, með því að senda vinaleg skilaboð eða jafnvel þakki þeim fyrir samfarirnar. Samkvæmt Guardian geta verjendur notað sér slík gögn til að draga úr trúverðugleika fórnarlambanna. Síðustu tvö ár hefur orðið 30 prósent aukning í nauðgunarmálum sem fara fyrir dómara. Á ráðstefnunni var það rakið til aukinnar umfjöllunar um nauðganir og kynferðisglæpi. Þar að auki virðast fórnalömb nauðgara hafa meiri trú á því að sögum þeirra sé trúað. Þrátt fyrir þá aukningu kom fram á ráðstefnunni að allt að 80 prósent nauðgana í Bretlandi séu ekki kærðar. Það kom fram í máli Martin Hewitt, æðsta lögreglumanns Bretlands, þegar kemur að nauðgunum og kynferðisglæpum. Á vef Mirror segir að nýjar starfsreglur hafi verið kynntar varðandi rannsóknir á nauðgunum. Þeim er ætlað að rannsóknin snúi í meira mæli að meintum gerenda, frekar en fórnarlambinu. Samkvæmt nýju reglunum þurfa þeir sem sakaðir eru um nauðgun að sanna að kynlíf hafi verið með samþyki allra aðila.
Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Sjá meira