Markverðirnir í aðalhlutverki í stórslagnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. desember 2015 19:15 Thibaut Courtois ver hér glæsilega frá Ander Herrera. vísir/getty
Manchester United sýndi betri tilþrif í kvöld en á undanförnum vikum er liðið gerði markalaust jafntefli við Chelsea á heimavelli. Talið hefur verið að starf Louis van Gaal hangi á bláþræði en þrátt fyrir góða spilamennsku í kvöld varð markaleysi liðinu að falli í kvöld eins og svo oft áður á tímabillinu. Bæði lið fengu þó næg tækifæri til að skora. Markverðirnir David De Gea hjá Manchester United og Thibaut Courtois hjá Chelsea voru í miklu stuði í kvöld og björguðu liði sínu nokkrum sinnum glæsilega í leiknum. United byrjaði vel í leiknum og Anthony Martial skaut í stöng snemma. Markið virtist liggja í loftinu fyrir heimamenn en eftir að De Gea varði skalla John Terry snemma leiks náðu gestirnir lítið að ógna marki heimamanna. Chelsea byrjaði þó síðari hálfleikinn af krafti og De Gea varði vel frá þeim Pedro og Cesar Azpilicueta en stuttu síðar kom eitt besta færi leiksin er Ander Herrara kom skoti að marki eftir fyrirgjöf Martial en Courtois varði glæsilega frá honum. Nemanja Matic skaut svo yfir úr góðu færi fyrir Chelsea og stuttu síðar virtist Willian handleika knöttinn innan teigs en ekkert var dæmt. Wayne Rooney fékk líka færi til að skora í leiknum en það átti ekki að verða. United spilaði vel í kvöld en mörkin komu ekki. United er nú með 30 stig og er í sjötta sæti deildarinnar en Chelsea er í fjórtánda sætinu með 20 stig.
Enski boltinn Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti Elvar kemur inn fyrir Elvar Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Fleiri fréttir Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Sjá meira