Erlent

Talíbanar frelsuðu 400 fanga með sjálfsmorðsárás á fangelsi

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Talsmaður Talíbana segir að byssumenn og þrír sjálfsmorðssprengjumenn hafi ráðist á fangelsið. Mynd úr safni.
Talsmaður Talíbana segir að byssumenn og þrír sjálfsmorðssprengjumenn hafi ráðist á fangelsið. Mynd úr safni. Vísir/AFP
Talíbanar réðust inn í fangelsi í afgönsku borginni Ghanzi snemma í morgun þar sem þeir drápu lögreglumenn og leystu hundruð fanga úr haldi. 

Reuters, sem er með fréttamann á vettvangi, segir að svo virðist vera sem tveir menn hafi gert sjálfsmorðsárás á fangelsið og að bíll hafi verið notaður til að eyðileggja aðalinngang fangelsisins.

Talsmaður Talíbana segir að byssumenn og þrír sjálfsmorðssprengjumenn hafi ráðist á fangelsið og frelsað 400 fanga. Yfirvöld segja hins vegar 352 fanga hafa sloppið, þar af 150 talíbana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×