Enski boltinn

Scholes er bestur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Scholes og Forlan fagna saman.
Scholes og Forlan fagna saman. vísir/getty
Diego Forlan hefur spilað með mönnum eins og Cristiano Ronaldo og Luis Suarez en segir að Paul Scholes sé sá besti sem hann hefur spilað með.

Aðrar stjörnur sem Forlan hefur spilað með eru meðal annars Javier Zanetti, Juan Roman Riquelme og Sergio Aguero en enginn af þessum gaurum er á pari við Scholes að mati Forlan.

Þeir léku saman í tvö og hálft ár hjá Man. Utd en þá var Forlan seldur til Villarreal enda fann hann sig ekki í rauða búningnum.

Scholes hafði augljóslega mikil áhrif á Úrúgvæann.

„Þessi rauðhærði gaur negldi bolta í markið af 30 metra færi eins og það væri ekkert mál. Það var ótrúlegt að fylgjast með honum," sagði Forlan.

Scholes var alla tíða hátt skrifaður hjá andstæðingum sínum og menn eins og Xavi, Zidane, Davids og Henry hafa allir sagt að hann sé einn sá besti sem þeir hafa mætt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×