Enski boltinn

Sonur Ian Wright jafnaði markamet í bandarísku deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bradley Wright-Phillips.
Bradley Wright-Phillips. Vísir/Getty
Bradley Wright-Phillips, sonur Arsenal-goðsagnarinnar Ian Wright, er að gera frábæra hluti í bandarísku MLS-deildinni en hann jafnaði markamet deildarinnar í nótt.

Bradley Wright-Phillips skoraði bæði mörk New York Red Bulls í 2-0 sigri á Kansas City í lokaumferðinni í nótt og endaði þar með 27 mörk í 32 leikjum í deildarkeppninni.

Wright-Phillips jafnaði þar með met þeirra Chris Wondolowski (2012) og Roy Lassiter (1996) sem náðu báðir að skora 27 mörk á einni leiktíð.

Faðir hans Ian Wright er einn mesti markaskorari ensku deildarinnar en hann skoraði meðal annars 185 mörk í 288 leikjum með Arsenal og átti markamet félagsins áður en Thierry Henry tók það af honum.

Bradley Wright-Phillips er orðinn 29 ára gamall en hann hefur leikið með New York Red Bulls frá árinu 2013.

Wright-Phillips aldist upp hjá Manchester City en lék einnig með liðum Southampton, Plymouth, Charlton og Brentford áður en hann fór til Bandaríkjanna 28 ára gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×