Eftirfylgni sparaði tugi milljóna króna Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 14. október 2014 07:00 Landspítali. Unnt er að fækka greiningarrannsóknum án þess að af hljótist skaði fyrir sjúklinga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hægt er að draga marktækt úr fjölda greiningarrannsókna á sjúkrahúsum og þar með draga úr kostnaði ef klínískum leiðbeiningum um verklag er fylgt eftir. Þetta kemur fram í meistaraverkefni Helgu Erlingsdóttur í heilsuhagfræði. Greint er frá niðurstöðunum í Scandinavian Journal of Clinical & Laboratory Investigation.„Árið 2009 setti framkvæmdastjórn Landspítalans kröfu um 15 prósenta fækkun á greiningarrannsóknum á stofnuninni árið 2010 í hagræðingarskyni. Í framhaldinu voru samdar klínískar leiðbeiningar um notkun margra greiningarprófa“, segir Helga sem skoðaði sérstaklega sex rannsóknir á Landspítala og sömu rannsóknir á Sjúkrahúsinu á Akureyri til samanburðar. Sparnaðurinn á Landspítala, þar sem var fræðsla og eftirfylgd, var á tímabilinu 2010 til 2013 67 milljónir króna en á Sjúkrahúsinu á Akureyri, þar sem ekki voru íhlutanir vegna rannsóknarbeiðna, var sparnaðurinn 343.627 krónur, að því er Helga greinir frá. Ari Jóhannesson, sérfræðingur í lyflækningum á Landspítala, sem var skipaður umsjónarlæknir verkefnisins, segir töluna 67 milljónir reyndar afstæða. „Þetta voru mest rannsóknir á sjúklingum spítalans sem ekki var rukkað fyrir eins og þegar um útseldar rannsóknir er að ræða. En þetta er líklega nálægt raunkostnaði og nauðsynlegt að hafa upplýsingar um kostnað við greiningarrannsóknir aðgengilegri læknum en verið hefur.“Hann segir að ráðdeildarsemi megi auðvitað ekki koma niður á heilsu skjólstæðinga Landspítalans. „Það er hins vegar til fjöldi erlendra kannana sem sýna fram á að unnt er að fækka greiningarrannsóknum án þess að af hljótist skaði fyrir sjúklinga. Það gildir þó ekki um allar rannsóknir. Þær sem verkefnið tók til voru valdar vegna þess að það lágu fyrir niðurstöður sem gáfu ákveðið til kynna að þeim mætti fækka að skaðlausu. Drjúgur hluti rannsókna er reyndar framkvæmdur í eftirlitsskyni fremur en til greiningar og þar má einnig hagræða.“ Helga kveðst hafa unnið með gögn frá 2007 til 2013 og skoðað kostnað fyrir og eftir klínísku leiðbeiningarnar. „Gert var ráð fyrir að allar rannsóknirnar hefðu verið gerðar á dagvinnutíma og því má áætla að sparnaðurinn hefði verið enn meiri þar sem 70 prósenta álag leggst á eftir klukkan 16 á daginn.“
Mest lesið Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Innlent Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Erlent Gerir stólpagrín að Von der Leyen Erlent Íslendingar óska eftir aðstoð Innlent Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Innlent Appelsínugul viðvörun á morgun Veður Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Erlent Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Innlent Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Erlent Fleiri fréttir Íslendingar óska eftir aðstoð Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Hinsegin vika er að hefjast í Árborg Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Færeyskir sjómenn á grænlenskum togara kusu á Íslandi Sjálfstæðisflokkurinn kynnir framboðslista í Reykjavík Um helmingur landsmanna hefur miklar áhyggjur af ásælni Bandaríkjanna í Grænland Fjórtán gefa kost á sér á lista Sjálfstæðismanna í Eyjum Guðmundur Árni leiðir áfram listann Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Forsetahjónin verða viðstödd vígslu íþróttamannvirkis í Búðardal Árás á Íran, Háskóladagurinn og stórkostlegur endurkomusigur Framboðslistinn í Reykjanesbæ staðfestur Frostlaust sums staðar sunnan heiða Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ „Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ „Nú verður fjör” hjá Sjálfstæðismönnum sem kynna lista í Mosó Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Sjá meira