Erlent

Þrjú handtekin í Danmörku

Freyr Bjarnason skrifar
Fólkið var handtekið í höfuðborg Danmerkur.
Fólkið var handtekið í höfuðborg Danmerkur. Fréttablaðið/Pjetur
Lögreglan í Danmörku hefur handtekið einn karlmann og tvær konur sem eru grunuð um stuðning við Íslamska ríkið og þar með brot á lögum um hryðjuverkastarfsemi.

Rúmar tvær milljónir króna voru gerðar upptækar við handtökuna.

Ali Daghim, sem er af pakistönskum uppruna, sagðist ekkert tengjast samtökunum en hann hafði selt um tuttugu límmiða fyrir bílstuðara.

Hann sagði að límmiðanir með lógói, hvítum arabískum texta á svörtum bakgrunni, væru notaðir af mörgum múslimum, þar á meðal Íslamska ríkinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×