Líkjast svolítið Dirty Harry eftir ár í starfi Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 2. september 2014 00:01
Meirihluti nýútskrifaðra lögreglunema í Svíþjóð hyggst fara í einu og öllu eftir reglum um samskipti við meinta afbrotamenn þegar þeir taka til starfa. Eftir rúmt ár í starfi fara sumir þeirra að brjóta umgengnisreglurnar og hegða sér svolítið eins og lögreglumaðurinn í kvikmyndunum um Dirty Harry. Þetta eru niðurstöður rannsóknar við félagsfræðideild Linnèháskólans í Växjö, sem greint er frá á vefnum forskning.no. Fylgst var með 24 lögreglunemum frá því að þeir hófu nám og eftir að þeir voru teknir til starfa. Einnig voru tekin viðtöl við lögreglumenn um hegðun starfsfélaga þeirra. Mörgum fannst framkoma starfsfélaga óþarflega harðneskjuleg gagnvart fíklum eða öðrum sem voru handteknir og grunaðir um lögbrot. Þeim sem gáfu þessi svör fannst óþægilegt að vinna við þessi skilyrði. Það eru einkum ungir karlar í stærstu borgunum sem fara að brjóta reglurnar þegar þeir taka til starfa. Eldri lögreglumenn í litlum bæjum fylgja frekar reglunum og það gera einnig lögreglukonur. Árni Sigmundsson, yfirlögregluþjónn og deildarstjóri grunnnámsdeildar Lögregluskóla ríkisins, segir skólann hér taka þátt í samevrópskri rannsókn um inntöku, nýnema, lögreglumenntun og starfsframa í lögreglunni. „Tilgangurinn er að komast að því hvaða þættir, ef einhverjir, einkenna þá sem hefja lögreglunám og hvort, og þá hvernig, námið og starfið breytir einstaklingum hvað varðar gildismat, viðhorf og væntingar. Rannsóknin hófst 2011 og henni er ekki lokið,“ segir hann.
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Fleiri fréttir Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Sjá meira