City í annað sætið | Sjáðu mörkin, rauða spjaldið og "dýfuna“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. nóvember 2014 00:01
Manchester City komst upp fyrir Southampton í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag með því að leggja Dýrlingana að velli, 3-0. Markalaust var í fyrri hálfleik, en þar dró helst til tíðinda að Sergio Agüero fékk gult spjald fyrir dýfu þegar nokkuð augljóslega var brotið á honum innan teigs. Í seinni hálfleik kom Yaya Touré City yfir á 51. mínútu með þrumuskoti fyrir utan teig sem fór í varnarmann og þaðan í netið. Gestirnir misstu Elaquim Mangala af velli með rautt spjald á 74. mínútu þegar hann braut á Shane Long við vítateiginn, en einum færri bættu meistararnir við marki. Það gerði Frank Lampard með föstu skoti í bláhornið eftir undirbúning James Milner tíu mínútum fyrir leikslok. Southampton lagði mikið kapp á að skora og koma sér inn í leikinn á kostnað varnarleiksins. Það skilaði þriðja marki gestanna sem varnarmaðurinn Gaël Clichy skoraði eftir skyndisókn á 88. mínútu. Lokatölur, 3-0. Manchester City er nú með 27 stig í öðru sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Chelsea en stigi á undan Southampton.Sergio Agüero fær gult þegar hann á að fá víti: Yaya Touré kemur Man. City í 1-0: Elaquim Mangala fær annað gult og þar með rautt: Frank Lampard skorar fyrir City 0-2 Gaël Clichy skorar þriðja mark Man. City:
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira