Frásögn Alvarengas fær stuðning Guðsteinn Bjarnason skrifar 4. febrúar 2014 10:00 Jose Salvador Alvarenga. Vísir/AP
Jose Salvador Alvarenga, sem segist hafa hrakist um Kyrrahafið í þrettán mánuði, týndist á bát sínum í miklu hvassviðri þann 18. nóvember árið 2012. Þetta fullyrða sjómenn í Costa Azul, litlu sjávarþorpi í Mexíkó, sem AP-fréttastofan hefur rætt við. Þeir hafa borið kennsl á Alvarenga af myndum sem birst hafa í fjölmiðlum. Samkvæmt frásögn þeirra stóðu hrakningar hans í Kyrrahafinu, frá Mexíkó til Marshall-eyja, yfir í fjórtán og hálfan mánuð. Gerð var mikil leit að tveimur mönnum á bát sem týndist í óveðri þennan dag, en hætta þurfti leitinni eftir tvo daga. Björgunarmenn í Mexíkó hafa staðfest þetta við breska blaðið The Guardian. Samkvæmt skráningum í Mexíkó voru mennirnir reyndar báðir 38 ára og hétu Cirilo Vargas og Ezequiel Cordova. Þetta passar ekki við frásögn Alvarengas, sem sagði að fjórtán ára piltur að nafni Ezequil hafi verið með sér í bátnum. Samkvæmt The Guardian mun þó algengt að gerð séu mistök í opinberum skráningum í Mexíkó. Heimamenn í Costa Azul þekktu Alvarenga undir nafninu La Chanca og sögðu hann þaulvanan sjómann. Hann hafi birst þar einn fyrir einhverjum árum að leita sér að vinnu. Þá hafa blaðamenn í El Salvador, heimalandi Alvarengas, haft uppi á foreldrum hans, sem segja hann hætt að hafa samband fyrir um átta árum. Stjórnvöld á Marshall-eyjum segja hann við þokkalega heilsu, og reyndar betri en búast hefði mátt við eftir að hafa hrakist um á hafinu í meira en ár. Hann verður líklega útskrifaður af sjúkrahúsi þar í dag.
Tengdar fréttir Hraktist á Kyrrahafinu í þrettán mánuði Jose Salvador Alvarenga segist hafa hrakist um á bátkænu á hafi úti frá því í desember 2012. 3. febrúar 2014 11:00 Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Erlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent Fleiri fréttir Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Sjá meira
Hraktist á Kyrrahafinu í þrettán mánuði Jose Salvador Alvarenga segist hafa hrakist um á bátkænu á hafi úti frá því í desember 2012. 3. febrúar 2014 11:00