Hraktist á Kyrrahafinu í þrettán mánuði Guðsteinn Bjarnason skrifar 3. febrúar 2014 11:00 Jose Salvador Alvarenga kominn á þurrt land. Nordicphotos/AFP
Maður, sem heitir Jose Salvador Alvarenga og er 37 ára gamall, segist hafa lagt af stað til fiskveiða á bátkænu frá Mexíkóströnd í desember árið 2012 ásamt fjórtán ára dreng, sem hét Ezekiel. Hann skolaði á land á eyjunni Ebon á Marshall-eyjum í síðustu viku, 5.500 kílómetrum vestar og þrettán mánuðum síðar, þá kominn langleiðina yfir Kyrrahafið. Hann segir að þeir hafi fljótlega lent í stórviðri og villst. Pilturinn hafi látist mánuði síðar en sjálfur hafi hann lifað á fiski, fuglum og skjaldbökum, auk þess sem hann hafi veitt litla hákarla með því að dýfa hendi sinni niður í sjóinn sem beitu, en svo gripið í sporðinn á hákörlunum þegar þeir nálguðust.Fátt er enn vitað um hrakninga mannsins.Nordicphotos/AFPAlvarenga segist vera frá El Salvador, en hafi búið í Mexíkó í fimmtán ár og stundað þar rækju- og hákarlaveiðar. Hann eigi tíu ára dóttur í Mexíkó og þrjá bræður í Bandaríkjunum, en vilji ólmur ná tali af vinnuveitanda sínum í Mexíkó, en sá heiti Willie. „Það er erfitt fyrir mig að trúa því að einhver hafi lifað af eftir þrettán mánuði á hafi úti,” segir Tom Ambruster, sendiherra Bandaríkjanna á Marshall-eyjum, í viðtali við AP-fréttastofuna. „En það er líka erfitt að trúa því einhver birtist skyndilega á Ebon. Þessi maður hefur greinilega lent í lífsraunum, og hann hefur verið á hafi úti í einhvern tíma.” Stjórnvöld á Marshall-eyjum segjast eiga eftir að kanna trúverðugleika frásagnarinnar. Hann sé ekki jafn horaður og aðrir menn, sem hrakist hafa lengi á hafi úti. Hins vegar geti frásögnin staðist. Nánar má lesa um hrakninga Alvarengas á vef The Daily Telegraph.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira