Erlent

Mótmælendur sitja um þinghúsið í Islamabad

ingvar haraldsson skrifar
Mótmælendur eru stuðningsmenn fyrrverandi krikketkappans Imrans Khan sem nú er einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar.
Mótmælendur eru stuðningsmenn fyrrverandi krikketkappans Imrans Khan sem nú er einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar. nordicphotos/afp
Pakistanskir þingmenn fylktu sér á bak við Nawaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, á neyðarþingfundi í gær vegna þúsunda mótmælenda sem brotist hafa gegnum girðingar umhverfis þinghúsið og hafa komið upp tjaldbúðum á lóð þinghússins. Mótmælendur krefjast afsagnar Sharifs vegna spillingar.

Á þingfundinum lýstu þingmenn yfir stuðningi við Sharif og kallaði innanríkisráðherra landsins mótmælendur hryðjuverkamenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×