Allardyce vonsvikinn að missa af Traore Kristinn Páll Teitsson skrifar 19. janúar 2014 14:15 Lacina Traore Gettyimages
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri West Ham viðurkenndi eftir leik liðsins í gær að hafa misst af Lacina Traore til Everton. Traore er stór og sterkur 23 ára framherji frá Fílabeinsströndinni. West Ham hefur verið á höttunum eftir Traore undanfarnar vikur og virtust vera að ganga frá kaupunum en tilboð Everton virðist hafa snúið hug Traore á lokametrunum. Hamrarnir voru búnir að sækja um atvinnuleyfi eftir að hafa samið um kjör við Monaco fyrir Traore sem gekk til liðs við Monaco frá Anzhi Makhachkala fyrir aðeins tveimur vikum. „Okkur gengur illa að styrkja liðið, föstudagurinn var hræðilegur þegar ég hélt að Traore væri að skrifa undir hjá okkur og þá komst ég að því að hann væri að semja við annað lið. Við misstum af honum á lokametrunum,“ West Ham er í botnbaráttu í ensku úrvalsdeildinni og hefur slakt gengi undanfarnar vikur aukið pressuna á Allardyce. Liðið hefur verið orðað við Joleon Lescott og Thomas Vermaelen en Allardyce taldi að Belginn stóri og stæðilegi væri ekki til sölu. „Ég held að Arsenal geti ekki misst hann núna, þeir eru að berjast á mörgum vígstöðum og hann er fyrsti maður inn ef miðvörður meiðist. Ég held að við munum ekki geta fengið leikmann í hans gæðaflokki en við gerum það besta sem við getum,“ sagði Allardyce.
Enski boltinn Mest lesið Tindastóll - Stjarnan | Sópur í Síkinu? Körfubolti Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Körfubolti Atlético - Arsenal | Skytturnar í Madríd Fótbolti Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Golf Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Fótbolti Fleiri fréttir Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Sjá meira