Fótbolti

Adriano á leið í frönsku B-deildina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Adriano í leik með Roma árið 2011.
Adriano í leik með Roma árið 2011. Vísir/Getty
Brasilíumaðurinn Adriano hefur ekki sagt sitt síðasta en hann greindi nýverið frá því að það væri 99 prósenta öruggt að hann væri á leið til Le Havre sem leikur í frönsku B-deildinni.

Adriano hefur verið án félags síðan að samningi hans við Atletico Paranaense í heimalandinu var rift í apríl síðastliðnum.

Hann vakti fyrst athygli þegar Inter keypti hann frá Flamengo en hann hefur þar að auki leikið með Parma og Roma. Þegar hann var á hátindi ferilsins þótti Adriano einn besti framherji heims en þessi 32 ára kappi hefur glímt við ýmis vandamál síðustu árin, til að mynda þunglyndi og áfengissýki.

Fyrir ári síðan steig umboðsmaður hans fram í fjölmiðlum og sagði ástand Adriano svo slæmt að hann óttaðist um líf kappans.


Tengdar fréttir

Adriano fær ekki nýjan samning

Knattspyrnuferill Brasilíumannsins Adriano virðist nú kominn á endastöð, í eitt skipti fyrir öll.

Adriano settur í megrun

Forráðamenn Flamengo í Brasilíu eru ekki sáttir við líkamlegt ástand framherjans Adriano og hafa sett hann í megrun.

Adriano: Ég er tilbúinn fyrir endurkomu til Evrópu

Brasilíski framherjinn Adriano hefur gefið út að hann geti nú vel hugsað sér að snúa aftur til Evrópu eftir að hafa hlaðið batteríin á meðan á dvöl hans hjá Flamengo stendur en samningur hans við brasilíska félagið rennur út næsta sumar.

Adriano aftur valinn í brasilíska landsliðið

Vandræðagemsinn Adriano hefur væntanlega ekki verið mjög þunglyndur í dag þegar hann fékk þau tíðindi að búið væri að velja hann í brasilíska landsliðið á nýjan leik.

Adriano kemur í stað Ronaldo hjá Corinthians

Brasilíski framherjinn Adriano hefur enn á ný sagt skilið við evrópska fótboltann og er á heimaleið frá Ítalíu. Roma sagði upp samningi hans eftir tíu mánuði fulla af eintómum vonbrigðum en Adriano fékk hinsvegar strax samning hjá brasilísla liðinu Corinthians.

Adriano hélt sér þurrum í þrettán daga hjá Flamengo

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Adriano á enn í stórkostlegum vandræðum með sjálfan sig og á erfitt með að halda sér frá flöskunni. Ferill hins hæfileikaríka Adriano er ein samfelld sorgarsaga. Eftir að hafa orðið einn hættulegasti framherji heims hjá Inter hefur leiðin legið hratt niður á við.

Adriano í vandræðum vegna tengsla við glæpagengi

Brasilíski framherjinn Adriano er enn á ný kominn í vandræði eftir að lögreglan yfirheyrði hann í gær vegna tengsla hans við glæpaklíku sem fæst við eiturlyfjasölu og ber ábyrgð á dauða lögreglumanna.

Adriano neitaði að blása í áfengismæli og missti prófið

Brasilíski framherjinn Adriano er manna duglegastur að koma sér í vandræði utan vallar og nú síðast missti hann bílprófið þegar hann var heima í Brasilíu. Adriano er nýkominn aftur til Ítalíu til að spila með Roma en var í Brasilíu í meðferð vegna axlarmeiðsla.

Adriano samdi við Flamengo

Brasilíski vandræðagemsinn Adriano er búinn að finna sér nýtt félag en hann samdi við sitt gamla félag, Flamengo, í dag. Inter hafði áður rift samningi við framherjann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×