Erlent

Vilja aðstoð vegna flóttamanna

Angelino Alfano.
Angelino Alfano.
Ítalska strandgæslan fann átján lík um borð í gúmmíbáti skammt undan Sikiley í gær. Báturinn fannst í víðtækum aðgerðum strandgæslunnar um helgina en alls var um 3.500 manns bjargað á Miðjarðarhafinu. Langflestir þeirra sem bjargað var koma frá Norður-Afríku í leit að betra lífi í Evrópu.

Angelino Alfano, innanríkisráðherra Ítalíu, ítrekaði í kjölfarið það sem hann hefur áður sagt, að Evrópusambandið þyrfti að grípa til aðgerða.

AP-fréttaveitan segir að um hundrað þúsund hælisleitendur hafi komið að landi á Ítalíu það sem af er þessu ári. Stjórnvöld þar segjast eyða 9,5 milljónum evra á ári, tæplega einum og hálfum milljarði króna, í eftirlit í lofti og á láði. Viðbúnaðurinn var aukinn eftir að 360 hælisleitendur drukknuðu við eyjuna Lampedusa í október.

Alfano innanríkisráðherra sagði að Ítalir myndu taka til sinna ráða ef Evrópusambandið kæmi þeim ekki til aðstoðar.

Cecilia Malmstrom, innanríkismálastjóri ESB, þakkaði Ítölum fyrir aðstoðina. Í tilkynningu fá henni segir að fundað verði með Alfano um forgangsröðun og aðstoð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×