Meirihluti Spánverja vill atkvæðagreiðslu um konungdæmið Stefán Ó. Jónsson skrifar 9. júní 2014 11:07 Mörg þúsund manns hafa safnast saman í miðborg Bilbao og krafðist þjóðaratkvæðagreiðslu VISIR/AFP
Framtíð spænska konungdæmisins hefur mikið verið á milli tannanna á Spánverjum í kjölfar afsagnar Juan Carlos Spánarkonungs þann 2. júní síðastliðinn. Tveir þriðju hlutar þjóðarinnar, eða um 62 prósent, vilja að „einhvern tímann“ skuli fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla sem muni ákveða hvort Spánn verð áfram konungdæmi eður ei. Þetta kom fram í skoðanakönnun sem spænska dagblaðið El Pais lét framkvæma á dögunum og The Guardian greinir frá. Mörg þúsund manns söfnuðust saman í miðborg Madríar og kröfðust slíkrar þjóðaratkvæðagreiðslu einungis örfáum klukkustundum eftir að konungurinn ákvað að stíga til hliðar og fá syni sínum krúnuna í hendur. Samskonar mótmæli áttu sér svo aftur stað nú á laugardag. Áætlað er að Felipe krónprins taki við af föður sínum þann 19. júní næstkomandi en þrátt fyrir fyrrgreind mótmæli nýtur hann meiri stuðnings meðal þjóðarinnar en fráfarandi konungur. Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun, sem birt var í dagblaðinu El Mundo, eru 70 prósent Spánverja ánægðir með krónprinsinn, en aðeins 41 prósent með kónginn. Ánægja Spánverja með konungdæmið hefur minnkað mikið á liðnum árum en þar spilar ímynd Juans Carlos stóra rullu vegna hneykslismála sem farið hafa illa í þjóðina. Meðal annars þótti mörgum harla óskynsamlegt af konunginum að bregða sér í fílaveiðiferð árið 2012, einmitt á meðan Spánverjar þurftu að glíma við erfiðustu efnahagsþrengingar seinni ára. Fram til þessa hefur forsætisráðherra Spánar, Mariano Rajoy, ekki viljað setja framtíð konungdæmisins í þjóðaratkvæði en hann byggir skoðun sína einna helst á þeim stuðningi sem konungsveldið naut við innleiðingu nýrrar stjórnarskrár landsins árið 1978.
Tengdar fréttir Konungur segir nóg komið Jóhann Karl Spánarkonungur boðar afsögn sína. Syni falið að taka við. Hann hefur ríkt í 39 ár og naut lengi vinsælda og virðingar, ekki síst fyrir þátt sinn í því að tryggja að lýðræði tæki við af einræðisherranum Franco. 3. júní 2014 07:00 Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Drengirnir fundnir heilir á húfi Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Fleiri fréttir Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Sjá meira
Konungur segir nóg komið Jóhann Karl Spánarkonungur boðar afsögn sína. Syni falið að taka við. Hann hefur ríkt í 39 ár og naut lengi vinsælda og virðingar, ekki síst fyrir þátt sinn í því að tryggja að lýðræði tæki við af einræðisherranum Franco. 3. júní 2014 07:00