Erlent

Stjórnmálamenn reyna að róa Bandaríkjamenn

Jakob Bjarnar skrifar
McConnell hefur gefið það út að hann muni ekki standa í vegi fyrir frumvörp og nauðsynlegar lagabreytingar nái fram að ganga.
McConnell hefur gefið það út að hann muni ekki standa í vegi fyrir frumvörp og nauðsynlegar lagabreytingar nái fram að ganga. ap
Hinn nýji leiðtogi öldungadeildar bandaríska þingsins, repúblikaninn Mitch McConnell og Barack Obama Bandaríkjaforseti, hafa báðir heitið því að slíðra vopnin en hatramar deilur þeirra á milli í kosningabaráttu hafa valdið óróa meðal Bandaríkjamanna.

Repúblikanar unnu stórsigur í kosningum í gær hafa nú meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins. McConnell hefur gefið það út að hann muni ekki standa í vegi fyrir frumvörp og nauðsynlegar lagabreytingar nái fram að ganga, en eftir kosningabaráttuna hafa kjósendur óttast að vonlaust sé fyrir þessa aðila að ná saman um nokkurn skapaðan hlut og allt sæti pikkfast; að þingið væri nánast óstarfhæft.


Tengdar fréttir

Repúblikönum spáð góðu gengi

Milljónir Bandaríkjamanna ganga að kjörborðinu í dag þegar kosið er um fulltrúa í fulltrúadeild og öldungadeild þingsins. Líklegt þykir að óvinsældir Bandaríkjaforseta komi til með að bitna á frambjóðendum demókrata.

Bandaríkjamenn kjósa til þings

Milljónir Bandaríkjamanna búa sig nú undir að ganga að kjörborðinu en kosið er um fulltrúa í fulltrúadeild og öldungadeild þingsins í dag. Repúblikanar stjórna nú fulltrúadeildinni og ekkert bendir til þess að það breytist.

Repúblikanar með yfirhöndina í báðum deildum

Repúblikanar á Bandaríkjaþingi náðu meirihluta í kosningum til öldungadeildarinnar sem fram fóru í gær og þeir juku einni við meirihluta sinn sem þeir höfðu fyrir í fulltrúadeildinni. Flokkurinn vann sæti í Arkansas, Colorado, Iowa, Norður Karólínu, Suður Dakóta og í Vestur Virginíu og búist er við frekari fylgisaukningu þegar talið hefur verið upp úr öllum kjörkössum, síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×