Erlent

Repúblikanar með yfirhöndina í báðum deildum

Repúblikanar fagna í gærkvöldi.
Repúblikanar fagna í gærkvöldi. VÍSIR/AFP
Repúblikanar náðu meirihluta í kosningum til öldungadeildar Bandaríkjaþings sem fram fóru í gær og þeir juku einnig við meirihluta sinn sem þeir höfðu fyrir í fulltrúadeildinni.

Flokkurinn vann sæti í Arkansas, Colorado, Iowa, Montana, Norður Karólínu, Suður Dakóta og í Vestur Virginíu og búist er við frekari fylgisaukningu þegar talið hefur verið upp úr öllum kjörkössum, síðar í dag.

Öldungadeildarþingmaðurinn og Repúblikaninn Mitch McConnell er talinn líklegastur til að taka við embætti forseta öldungadeildarinnar. Hann sagði niðurstöður kosninganna vera merki um Bandaríkjamenn hafi kosið gegn „stjórn sem þeir geta ekki treyst lengur“.

Kosningarnar eru taldar afhroð fyrir Demókrataflokkinn og munu þær gera róðurinn mun þyngri fyrir Barack Obama forseta, sem er Demókrati, en hann á nú tvö ár eftir að síðara kjörtímabili sínu. Kosið var um þriðjung þingsæta í öldungadeild þingsins, öll þingsæti fulltrúadeildar, 36 ríkisstjóra, auk ótal embætta innan einstakra ríkja og sýslna.

Í frétt BBC kemur fram að Repúblikanar hafi einnig bætt hressilega við sig í fulltrúadeildinni og hafa ekki verið sterkari þar síðan á dögum Truman forseta upp úr seinna stríði. Samkvæmt nýjustu tölum eiga Repúblikanar nú 237 fulltrúa í fulltrúadeildinni, en Demókratar 162.

Repúblikanar einblíndu í kosningabaráttunni á óánægju kjósenda með Obama forseta og lýstu kosningunum sem þjóðaratkvæðagreiðslu um störf forsetans. Sigur Repúblikana mun hafa áhrif á getu Obama til að skipa nýja alríkisdómara, ráðherra og háttsetta embættismenn.

Enn á eftir að klára talningu í nokkrum ríkjum en ljóst er að Repúblikanar unnu auðveldlega þau sex þingsæti sem þurfti til að ná meirihluta í öldungadeildinni af Demókrötum. Sem stendur skipa Repúblikanar 52 þingsæti og er búist við að þeir nái fleirum áður en talningu lýkur. 100 þingmenn eiga sæti í öldungadeild þingsins.

Nýtt þing tekur til starfa í ársbyrjun en þetta verður í fyrsta sinn frá árinu 2006 þar sem Repúblikanar hafa meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×