Funduðu vegna Hoyvíkursamningsins Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. september 2014 12:56 Frá fundinum í morgun. Mynd/Utanríkisráðuneytið
Á árlegum fundi Hoyvíkurráðsins sem haldinn var í Reykjavík í dag, ræddu Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Kaj Leo Johannesen, lögmaður Færeyja, um rekstur Hoyvíkur-samningsins. Aleqa Hammond, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, ásamt sendinefnd sat einnig fundinn sem áheyrnarfulltrúi og er það í fyrsta skipti sem fulltrúar Grænlands hafa áheyrnaraðild að fundi Hoyvíkur-ráðsins. Töluverð umræða hefur verið um Hoyvíkur-samninginn undanfarna daga eftir að færeyskt skip, sem lenti í vélarbilun í fiskveiðilögsögu Grænlands, átti ekki að fá þjónustu í Reykjavíkurhöfn. Á endanum fékk skipið þó þjónustu og er farið á brott. Á fundinum var rætt um rekstur Hoyvíkur-samningsins en hann er, að EES-samningnum frátöldum, víðtækasti fríverslunarsamningur sem Ísland hefur gert. Hann tekur meðal annars til vöruviðskipta, þjónustuviðskipta, frjálsrar farar fólks og búseturéttar, stofnsetningarréttar, fjármagnsflutninga og fjárfestinga. Auk umræðna um Hoyvíkur-samninginn ræddu ráðherrarnir ásamt formanni grænlensku landsstjórnarinnar m.a. um vestnorrænt samstarf. Þau voru öll sammála um nauðsyn þess að efla samstarf vestnorrænu landanna á sviðum eins og í sjávarútvegi, viðskiptum, heilbrigðismálum og menningu. Í tengslum við fund Hoyvíkur-ráðsins átti utanríkisráðherra í gær fund með utanríkismálanefnd lögþings Færeyja. Á þeim fundi var meðal annars rætt um rekstur Hoyvíkur-samningsins, stefnu í norðurslóðmálum, vestnorræna samvinnu og stöðuna í Rússlandi og í Miðausturlöndum. Sama dag átti ráðherra einnig, ásamt lögmanni Færeyja og formanni grænlensku landsstjórnarinnar, fund með vestnorræna ráðinu sem skipað er þingmönnum frá löndunum þremur. Næsti fundur Hoyvíkur-ráðsins verður haldinn í Færeyjum sumarið 2015 og mun hann marka 10 ára afmæli samningsins. Utanríkisráðherra og lögmaður Færeyja urðu sammála um að stefna að því að halda ráðstefnu um Hoyvíkur-samninginn í tengslum við þann fund og bjóða sérstaklega til hans fulltrúum Grænlands. Af sama tilefni verði hvatt til þess að fulltrúar viðskiptalífs ríkjanna og fyrirtæki komi saman og beri saman bækur um hvernig stuðla megi að auknum gagnkvæmum viðskiptum milli ríkjanna á grundvelli samningsins.
Tengdar fréttir Færeyingarnir fá að fara í land og njóta íslenskrar gestrisni "Það hefur alltaf legið fyrir að skipið fengi að koma hingað til hafnar þar sem það þarf á aðstoð að halda vegna vélabilunar,“ segir Ásgrímur Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðarsviðs Landhelgisgæslunnar 29. ágúst 2014 15:25 „Ótrúlega aum framkoma við Færeyinga“ Jón Bjarnason, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, er afar ósáttur við þá staðreynd að skipverjar á færeyska skipingu Nærabergi fái ekki olíu, vatn og vistir í Reykjavík. 29. ágúst 2014 13:32 34 Færeyingar fá ekki aðstoð í Reykjavíkurhöfn: „Skammist ykkar Íslendingar!“ "Þetta eru þakkirnar fyrir milljónirnar sem við veittum þeim í neyðarhjálp,“ segir Egil Petersen skipverji á færeyska makrílveiðiskipinu Nærabergi sem ekki fær þjónustu við Reykjavíkurhöfn. 29. ágúst 2014 13:19 Þrettán þúsund manns biðja Færeyinga afsökunar Áhöfn færeyska togarans Nærarberg er nú á heimleið með þrettán þúsund "like" í farteskinu. 1. september 2014 16:34 Færeyingar alltaf velkomnir í Hornafjarðarhöfn "Hér kom færeyskur línuveiðari inn í dag og fékk hann þá þjónustu sem hann óskaði eftir, eins og þeir Færeysku fiskibátar sem hafa komið hingað í áranna rás.“ 29. ágúst 2014 14:58 Færeysku skipverjarnir fengu kökur og gos Mál makrílskipsins Nærabergs hefur vakið sterk viðbrögð. Sjávarútvegsráðherra segir umræðu um málið óvæga. 30. ágúst 2014 19:22 Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Fleiri fréttir Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Sjá meira
Færeyingarnir fá að fara í land og njóta íslenskrar gestrisni "Það hefur alltaf legið fyrir að skipið fengi að koma hingað til hafnar þar sem það þarf á aðstoð að halda vegna vélabilunar,“ segir Ásgrímur Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðarsviðs Landhelgisgæslunnar 29. ágúst 2014 15:25
„Ótrúlega aum framkoma við Færeyinga“ Jón Bjarnason, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, er afar ósáttur við þá staðreynd að skipverjar á færeyska skipingu Nærabergi fái ekki olíu, vatn og vistir í Reykjavík. 29. ágúst 2014 13:32
34 Færeyingar fá ekki aðstoð í Reykjavíkurhöfn: „Skammist ykkar Íslendingar!“ "Þetta eru þakkirnar fyrir milljónirnar sem við veittum þeim í neyðarhjálp,“ segir Egil Petersen skipverji á færeyska makrílveiðiskipinu Nærabergi sem ekki fær þjónustu við Reykjavíkurhöfn. 29. ágúst 2014 13:19
Þrettán þúsund manns biðja Færeyinga afsökunar Áhöfn færeyska togarans Nærarberg er nú á heimleið með þrettán þúsund "like" í farteskinu. 1. september 2014 16:34
Færeyingar alltaf velkomnir í Hornafjarðarhöfn "Hér kom færeyskur línuveiðari inn í dag og fékk hann þá þjónustu sem hann óskaði eftir, eins og þeir Færeysku fiskibátar sem hafa komið hingað í áranna rás.“ 29. ágúst 2014 14:58
Færeysku skipverjarnir fengu kökur og gos Mál makrílskipsins Nærabergs hefur vakið sterk viðbrögð. Sjávarútvegsráðherra segir umræðu um málið óvæga. 30. ágúst 2014 19:22