Erlent

Saklausir í fangelsi í þrjátíu ár

Vísir/Getty
Bandarískir hálfbræður, Henry McCollum og Leon Brown hafa verið látnir lausir úr fangelsi þar sem þeir hafa þurft að dúsa í þrjátíu ár eftir að ný gögn í máli þeirra komu í ljós sem sanna að þeir hafi verið dæmdir saklausir.

Bræðurnir voru dæmdir árið 1983 fyrir morð á ellefu ára gamalli stúlku í Norður Karólínu. Mennirnir játuðu í fyrstu en héldu síðar fram sakleysi sínu og fyrir nokkru fundu lögmenn sem unnu að máli þeirra DNA sýni í sígarettu sem fannst við líkið á sínum tíma.

Hægt var að rekja sýnið til manns sem var margdæmdur nauðgari og bjó skammt frá þeim stað þar sem líkið fannst. Lögmenn mannanna segja að þeir hafi verið þvingaðir til þess að játa á sig morðið í upphafi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×