Bærinn mat það upphaflega sem svo að það samræmdist ekki viðskiptahagsmunum bæjarsins að gefa leiguverðið upp. Kórinn væri í samkeppni við önnur mannvirki á höfuðborgarsvæðinu sem leigð eru út fyrir tónleika af þessum toga.
„Þess má geta að í aðdraganda samningsins um tónleika í Kórnum neituðu samkeppnisaðilar að gefa upp leiguverð þegar eftir var leitað. Í ljósi ásakana um spillingu er metið sem svo að það sé rétt að fórna hugsanlegum viðskiptahagsmunum bæjarins.“
Leiga Kópavogsbæjar á Kórnum hefur verið töluvert til umfjöllunar undanfarna daga eftir að Sigurjón Jónsson, varabæjarfulltrúi í Framsókn, óskaði eftir því að leigan yrði gefin upp. Þá kallaði hann eftir því að upplýst yrði hvaða bæjarfulltrúar hefðu þegið miða á tónleikana. Vísaði hann í siðareglur bæjarins og velti því fyrir sér hvort þær hefðu verið brotnar. Sigurjón hafði ætlað að þiggja boðsmiða á tónleikana en í ljós kom að þeir voru bara ætlaðir bæjarfulltrúum.
Kópavogsbær fékk 30 boðsmiða frá Senu á tónleikana. Taldi Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri það mikilvægt að bæjarfulltrúar fengju að upplifa tónleikana til að vera betur í stakk búnir til að meta framtíðarmöguleika íþróttahússins. Allir bæjarfulltrúarnir ellefu þáðu miðana en mökum var einnig boðið. Sagði Ármann í kvöldfréttum Stöðvar 2 það eðlilegt enda væri um sunnudagskvöld að ræða.
Hinir miðarnir átta fóru til Páls Magnússonar bæjarritara og Steingríms Haukssonar, sviðsstjóra umhverfissviðs, sem hvor fékk tvo miða. Þá fengu Jón Júlíusson, deildarstjóri íþróttadeildar, Gunnar Guðmundsson íþróttafulltrúi, Valdimar F. Valdimarsson, rekstrarfulltrúi á íþróttadeild og Sævar Sigurðsson sérfræðingur á íþróttadeild sinn miðann hver.

Í svari Kópavogsbæjar kemur fram að lítil starfsemi sé í Kórnum yfir sumartímann. Þá átta daga sem Sena leigði húsið hafi engin starfsemi verið fyrirhuguð. Miðað við leiguverð í Kórnum og fulla nýtingu á húsnæðinu frá morgni til kvölds væru leigutekjur fyrir dagana átta 3.826.000 krónur. Leigutekjur vegna tónleikanna voru því umfram áætlaðar tekjur af leigu hússins.
Hönnun Kórsins miðast við að 19.000 manns geti verið í honum en flóttaleiðir hússins miða við það. Í samningi Kópavogsbæjar við Senu, sem lesa má í heild sinni hér að neðan, er kveðið á um að hámarksfjöldi gesta á þennan viðburð sé 17.500 og öryggis- og rýmingaráætlanir miðuðu við þann fjölda. Stærð og staðsetning sviðsins takmarkaði fjölda gesta við 17.500 manns.
Í viðhengi hér að neðan má sjá verðskrá Kórsins auk samningsins sem Kópavogsbær gerði við Senu.