Koma upp vegartálmum vegna ebólufaraldurs Atli Ísleifsson skrifar 7. ágúst 2014 21:45 Veiran hefur nú dregið rúmlega 900 til dauða frá áramótum. Vísir/AP
Líberískir hermenn hafa komið upp vegartálmum til að koma í veg fyrir að fólk frá svæðum í vesturhluta landsins þar sem ebólusmit hafa verið sérstaklega tíð, komi inn í höfuðborgina Monrovíu. Aðgerðin kemur í kjölfar þess að forseti landsins lýsti yfir neyðarástandi vegna faraldursins, sem hefur orðið 930 manns að bana í Vestur-Afríku það sem af er ári. Forsetinn Ellen Johnson Sirleaf sagði ríkisstjórn landsins verða að grípa til róttækra aðgerða til að tryggja öryggi ríkisins og líf Líberíumanna. Öryggissveitir í Sierra Leone hafa nú lokað af svæðum í austurhluta landsins þar sem fjölmargir hafa smitast. Þetta er mannskæðasti ebólufaraldur mannkynssögunnar og munu sérfræðingar á vegum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) og annarra stofnana funda á næstu tveimur dögum til að ræða hvernig skuli brugðist við ástandinu. Ebólaveiran er einn banvænasti sjúkdómur sem þekkist þar sem hún dregur milli 50 og 60 prósent smitaðra til dauða. Ebólan kom upp í Gíneu í febrúar og hefur síðan þá náð að breiðast út til nærliggjandi landa – Líberíu og Sierra Leone og nú, Nígeríu en þar búa um 170 milljón manna.
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Sjá meira