Ofurgyltan Esther og eigendur vilja bjarga fleiri svínum Kjartan Atli Kjartansson skrifar 23. maí 2014 10:48 Gælugyltan Esther er vinsæl.
Gælugyltan Esther hefur breytt lífi eigenda sinna til muna. Gyltan sem vegur rúm 240 kíló er orðinn miðpunktur heimilislífsins. Eigendurnir, Derek Walter og Steve Jenkins sem eru frá Toronto í Kanada, tóku hana að sér fyrir tæpum tveimur árum þegar þeir fengu skilaboð í gegnum Facebook frá gamalli skólasystur. Líf Jenkins og Walter hefur breyst til muna. Þeir eru nú orðnir grænmetisætur og eru farnir að safna fyrir jörð svo þeir geti bjargað fleiri svínum. Hún hefur verið nefnd Esther The Wonder Pig, eða Ofurgyltan Esther.Facebookskilaboðin afdrifaríku Skólasystirin sem áður átti Esther útskýrði fyrir þeim Jenkins og Walther að hún gæti ekki átt gyltuna lengur, því hundarnir hennar tóku hana ekki í sátt. Skólasystirin fyrrverandi sagði Esther vera smásvín, hún myndi aldrei ná fullri stærð. Hún átti aldrei verða þyngri en 35 kíló. Walter og Jenkins slógu til og tóku Esther að sér, enda miklir dýravinir. Þeir fóru með hana til dýralæknis sem sagði þeim að Esther væri venjulegt svín, myndi verða stór og þung. „Við vorum þá þegar orðnir ástfangnir af henni. Við ákváðum bara að bíða og sjá hvað myndi gerast. En eftir því sem við áttum hana lengur stækkaði hún og stækkaði,“ útskýrir Jenkins. Átta mánuðum seinna var Esther orðin 70 kíló. Hún hélt áfram að stækka og þyngjast og er nú orðinn vel á þriðja hundrað kíló. Jenkins og Walter eru hættir að fara með hana út að labba. „Við skulum alveg hafa hlutina á hreinu. Ef við færum út með hana og hana langaði að hlaupa um, þá væri ekkert sem við gætum gert. Hún er það sterk.“ Þeir eiga tvo hunda og tvo ketti. Öll dýrin í stofunni eru vinir. Þau eyða deginum saman í mesta bróðerni. „Fyrst voru hundarnir að atast í henni, en eru nú búnir að taka hana í sátt,“ útskýrir Jenkins. Esther sefur í sínu eigin rúmi, en eyðir deginum oft upp í rúmi Walter og Jenkins. Þeir reyna nú að safna pening á netinu, í gegnum fjáröflunarsíðu. Þeir vilja bjarga fleiri svínum og ætla að kaupa jörð og reisa svínastíu fyrir önnur svín eins og Esther. Þeir stefna á að ná 50 milljónum króna og eiga enn nokkuð í land, eru komnir með um 20 milljónir inn á reikninginn sinn. Þeir eru einnig með vinsæla Facebook-síðu sem hefur fengið 140 þúsund „like“. Hér að neðan má sjá myndband þar sem Esther fer í bað.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira