Enski boltinn

Gifti sig í búningi Man. Utd

Brúðurin virkar ekkert allt of ánægð með þessa hugmynd en brúðguminn brosir út að eyrum.
Brúðurin virkar ekkert allt of ánægð með þessa hugmynd en brúðguminn brosir út að eyrum.
Ensk knattspyrnufélög eiga ekki bara eldheita aðdáendur á Íslandi því par í Kenýa setti ný viðmið á dögunum er það hélt Man. Utd brúðkaup.

Þema brúðkaupsins var enski knattspyrnurisinn Manchester United. Brúðguminn gifti sig í treyju félagsins, brúðarbíllinn var merktur félaginu og brúðkaupskakan var merkt Chevrolet sem er aðalstyrktaraðili félagsins.

Brúðurin var reyndar í hefðbundnum hvítum brúðarkjól en var þó með rauða teygju í hárinu.

Vísir óskar parinu til hamingju með ráðahaginn og vonast til þess að hjónabandið byrji betur en tímabilið hjá United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×