Enski boltinn

Crystal Palace vann leik | Úrslit dagsins

Leikmenn Newcastle fagna í dag.
Leikmenn Newcastle fagna í dag.
Þau undur og stórmerki gerðust í enska boltanum í dag að lið Crystal Palace vann knattspyrnuleik. Tíðindin um komu Tony Pulis fóru greinilega vel í liðið því liðið var að vinna sinn annan leik í vetur.

Sigurinn var mjög glæsilegur enda á útivelli og liðið þetta utan manni færri er það skoraði sigurmarkið. Palace er í næstneðsta sæti deildarinnar eftir sigurinn.

Newcastle vann svo fínan heimasigur á Norwich þar sem Frakkarnir sáu að sjálfsögðu um skora mörkin fyrir heimamenn.

Sunderland er í komið í neðsta sæti deildarinnar. Wes Brown gerði félögum sínum lítinn greiða í dag með því að láta reka sig af velli í fyrri hálfleik er liðið tapaði gegn Stoke.

Úrslit:

Fulham-Swansea  1-2

0-1 Aaron Hughes, sjm (56.), 1-1 Scott Parker (64.), 1-2 Jonjo Shelvey (79.)

Hull-Crystal Palace  0-1

0-1 Barry Bannan (80.)

Rautt spjald: Yannick Bolasie, Palace (77.)

Newcastle-Norwich  2-1

1-0 Loic Remy (1.), 2-0 Yoan Gouffran (38.), 2-1 Leroy Fer (80.)

Stoke-Sunderland  2-0

1-0 Charlie Adam (30.), 2-0 Steve Nzonzi (80.)

Rautt spjald: Wes Brown, Sunderland (35.).

Everton-Liverpool  3-3

Staðan í ensku úrvalsdeildinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×