Jafnt í markaveislu hjá Everton og Liverpool 23. nóvember 2013 00:01 Lukaku skoraði tvö mörk en það dugði ekki til sigurs hjá Everton.
Nágrannaliðin Everton og Liverpool skildu jöfn, 3-3, í hreint út sagt stórkostlegum knattspyrnuleik á Goodison Park í dag. Leikurinn byrjaði með gríðarlegum látum og það var ekki búið mikið af leiknum Coutinho kom Liverpool yfir. Hann potaði boltanum yfir línuna af stuttu færi. Everton lét þetta mark ekki á sig fá og liðið jafnaði skömmu síðar. Kevin Mirallas fékk boltann á fjærstöng og skoraði. Tvö mörk og ekki liðnar átta mínútur af leiknum. Luis Suarez kom svo Liverpool yfir með stórkostlegu marki beint úr aukaspyrnu. 1-2 fyrir Liverpool í hálfleik. Liverpool vildi fá rautt spjald á Mirallas er hann braut illa á Suarez í fyrri hálfleik. Hann slapp með skrekkinn og gerði það aftur í síðari hálfleik er hann fór með olnbogann upp í skallaeinvígi og blóðgaði Jordan Henderson. Everton fékk heldur betur færin til þess að jafna en Mignolet var í banastuði í marki Liverpool og varði oft á tíðum glæsilega. Hann kom þó engum vörnum við er Lukaku jafnaði leikinn nítján mínútum fyrir leikslok. Hann var einn á auðum sjó í miðjum teignum og skoraði. Hann var svo sannarlega ekki hættur því hann kom Everton svo yfir með frábærum skalla eftir hornspyrnu. Mögnuð endurkoma hjá Everton. Fjörið var þó ekki búið því Daniel Sturridge jafnaði skömmu fyrir hlé með glæsilegum skalla. Aukaspyrna frá Gerrard sem Sturridge beindi í fjærhornið. Þrátt fyrir fína tilburði á lokamínútunum þá tókst liðunum ekki að bæta við mörkum.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Enski boltinn „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Myndasyrpa: Tryllt Íslendingapartý í Malmö Handbolti Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Sú besta í heimi er ólétt Sport Fleiri fréttir Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Sjá meira