Enski boltinn

Rio gæti lagt skóna á hilluna næsta sumar

Rio Ferdinand hefur ekki verið fastamaður í liði Man. Utd á þessari leiktíð og hann hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann spili áfram á næsti leiktíð.

"Stjórinn notaði mig ekki gegn Arsenal og svo aftur í leiknum þar á eftir. Það er svekkjandi en aldurinn lýgur ekki," sagði hinn 35 ára gamli Ferdinand en viðurkennir að skrokkurinn sé farinn að gefa eftir með hækkandi aldri.

"Ég þarf að sætta mig við það að ég get ekki lengur spilað alla leiki. Það er erfitt því auðvitað vill maður alltaf spila. Þessu þarf maður að taka. 35 ára menn hjá Man. Utd þurfa að deila ábyrgðinni með öðrum.

"Ég veit ekki hvort ég leggi skóna á hilluna næsta sumar. Ég þarf fyrst að komast í gegnum þetta tímabil. Ég sagði það sama í fyrra en ég get ekki horft lengra en til loka tímabilsins. Þá tek ég stöðuna á nýjan leik."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×