Enski boltinn

Barcelona og Real Madrid vilja fá Ramires

Ramires.
Ramires.
Brasilíski miðjumaðurinn hjá Chelsea, Ramires, er greinilega eftirsóttur þessa dagana því hann hefur verið orðaður við bæði Barcelona og Real Madrid.

Sjálfur er Ramires ekkert að velta sér upp úr þessum orðrómi og segist vita lítið um málið.

"Það eru margir að spyrja mig út í þetta mál en ég veit ekki neitt fyrir utan það sem hefur verið skrifað í fjölmiðla," sagði Ramires við brasilíska fjölmiðla.

"Ég er með samning við Chelsea og mín skylda er að hugsa um félagið og leggja mig fram fyrir Chelsea."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×