Bréf franska byssumannsins talin geta varpað ljósi á málið Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 21. nóvember 2013 15:54 Annað bréfið fannst í bifreið Dekhars en hitt afhenti leigusali hans lögregluyfirvöldum. mynd/afp
Lögregla í Frakklandi hefur fundið tvö bréf frá Abdelhakims Dekhar, manninum sem grunaður er um skotárásir í París síðustu daga. Talið er að bréfin geti varpað ljósi á hvers vegna Dekhar framdi verknaði sína, en hann var handtekinn klukkan sex í gærkvöldi á bílastæði í úthverfi borgarinnar. Að sögn saksóknara fordæmir Dekhar fjölmiðla og kapítalisma í öðru bréfanna en í hinu fjallar hann um samsæri fasista. Annað bréfið fannst í bifreið Dekhars en hitt afhenti leigusali hans lögregluyfirvöldum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Dekhar kemst í kast við lögin en árið 1998 var hann fangelsaður fyrir aðild sína að nokkrum banvænum skotárásum í borginni. Hann hefur enn ekki verið yfirheyrður og segir lögreglan að hann hafi verið í annarlegu ástandi þegar hann var handtekinn. Franskir miðlar segja að mögulega hafi hann reynt að fyrirfara sér.Mikil leit hafði staðið yfir að manninum. Hann hafði uppi hótanir í anddyri sjónvarpsstöðvarinnar BFMTV síðasta föstudag. Á mánudag réðst hann inn í skrifstofur dagblaðsins Liberation, hleypti tvisvar af byssu sinni og særði alvarlega 23 ára mann. Tveimur klukkustundum síðar skaut sami maður úr byssu fyrir utan höfuðstöðvar bankans Société Générale. Enginn særðist í þeirri árás.
Mest lesið „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Innlent Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Innlent Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Erlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Fleiri fréttir Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Sjá meira