Erlent

Lofar kosningum í desember

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Ari Larajedh boðar nýja stjórnarskrá og kosningar.
Ari Larajedh boðar nýja stjórnarskrá og kosningar. nordicphotos/AFP
Forsætisráðherrann í Túnis segist enga ástæðu sjá til þess að segja af sér, þótt stjórnarandstæðingar krefjist þess af honum.

Forsætisráðherrann Ari Larajedh hélt þrumuræðu í gær þar sem hann vísaði öllum slíkum kröfum á bug. Hins vegar gaf hann loforð um að ný stjórnarskrá verði tilbúin í ágúst og kosningar verði haldnar í desember.

Almenn reiði hefur verið í Túnis eftir að stjórnmálamaðurinn Múhamed Brahmi var myrtur í síðustu viku.

Ekki batnaði ástandið í gær þegar átta hermenn voru drepnir þar sem setið var fyrir þeim í fjallahéraði, þar sem höfuðvígi herskárra íslamista er.

Arabíska vorið svonefnda hófst í Túnis með byltingu almennings veturinn 2010 til 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×