SÞ: Júlí var blóðugasti mánuðurinn í Írak í fimm ár Þorgils Jónsson skrifar 1. ágúst 2013 13:00 Mikið mannfall hefur orðið í Írak síðustu mánuði. 928 óbreyttir borgarar létust í árásum milli trúarhópa í júlímánuði, þar af 58 í röð sprenginga í Bagdad á mánudaginn, en þessi mynd var tekin þar á vettvangi. Nordicphoto/AFP
Stjórnvöld í Írak þurfa að grípa tafarlaust til aðgerða til að stemma stigum við blóðbaðinu sem geisað hefur í landinu síðustu mánuði. Þetta segir í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna um ástand mála í Írak, en þar kemur meðal annars fram að 4.137 óbreyttir borgarar hafi látið lífið í árásum vígahópa í ár, þar af 928 í júlímánuði einum saman. Það er mesta mannfall sem orðið hefur í einum mánuði í fimm ár, en auk þess hafa tæplega 10.000 særst í árásum í ár. „Áhrif ofbeldisins á óbreytta borgara er sláandi,“ segir Gíorgí Busztin, fulltrúi SÞ í Írak. „Leiðtogar landsins verða að grípa tafarlaust til aðgerða með ákveðnum hætti til að stöðva þetta tilgangslausa blóðbað,“ bætti hann við. Busztin segir að ef ekkert verði af gert muni ástandið þróast út í það sem var í óöldinni sem ríkti árin 2006 til 2007. Þá bárust helstu trúarhópar landsins, sjítar og súnnítar, á banaspjótum þar sem þúsundir manna létust. Í flestum tilfellum er um að ræða árásir súnníta á sjíta. Í hópi súnníta eru meðal annars liðsmenn al-Kaída í Írak, en tilgangur þeirra með árásunum er talinn vera að æsa trúbræður sína til aðgerða gegn sjítum, sem eru fjölmennastir í Írak og ráða mestu í stjórn landins. Saddam Hússein var súnníti og á stjórnarárum hans var sjítum kerfisbundið haldið niðri, en eftir stjórnarskiptin sem fylgdu innrás Bandaríkjamanna urðu alger umskipti sem falla súnnítum ekki í geð. Höfuðborgin Bagdad hefur orðið verst úti í ofbeldisöldunni þar sem 238 óbreyttir borgarar létust og 719 særðust í síðasta mánuði.Múslimar trúa allir á einn og hinn sama guð, Allah, og spámanninn Múhameð. Þeir skiptast þó í tvær meginfylkingar, súnníta og sjíta. Sá klofningur varð þegar Múhameð lést árið 632 en deilan snýst að mestu um það hver skyldi vera eftirmaður spámannsins. Súnnítar héldu því fram að Abu Bekr, tengdafaðir Múhameðs, skyldi verða andlegur, og að nokkru veraldlegur, leiðtogi, en þeir sem héldu fram Ali, tengdasyni Múhameðs, nefndust sjítar. Þá hafa hóparnir misjafna sýn á hin svokölluðu hadith sem eru ummæli sem höfð eru eftir Múhameð, en er ekki að finna í Kóraninum, en súnnítar eru fastheldnari á fylgni við helgiritið. Súnnítar eru fjölmennari á heimsvísu þar sem þeir telja á milli 80 og 90% allra múslima, Sjítar eru þó fjölmennari í einstökum löndum, meðal annars Íran og Írak. (Heimildir: Vísindavefurinn og Wikipedia)
Mest lesið WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Innlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Erlent Kjartan er kominn heim til Íslands Innlent Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri Erlent Ný samræmd próf lögð fyrir Innlent Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Innlent Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Innlent Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Innlent Fleiri fréttir Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Talin hafa myrt móður sína og stjúpbróður fyrir skotárásina „Þjóðin syrgir með ykkur“ Leitarheimild byggði á löngu afsönnuðum ásökunum um svindl Opna aftur á flugumferð í El Paso eftir drónaflug frá Mexíkó Sjá meira